Viðskipti innlent

Lárus nýr formaður stjórnar Bankasýslunnar

Atli Ísleifsson skrifar
Lárus L. Blöndal hæstaréttarlögmaður.
Lárus L. Blöndal hæstaréttarlögmaður. Vísir/Arnþór
Fjármála- og efnahagsráðherra hefur skipað nýja stjórn Bankasýslu ríkisins. Lárus L. Blöndal hæstaréttarlögmaður er nýr formaður stjórnar og Hulda Dóra Styrmisdóttir hagfræðingur varaformaður.

Auk Lárusar og Huldu Dóru á Sigurjón Örn Þórsson stjórnmálafræðingur sæti í stjórn. Varamaður er Egill Tryggvason, viðskiptafræðingur. Hulda Dóra og Egill hafa áður setið í stjórn stofnunarinnar.

Hlutverk stofnunarinnar er að fara með eignarhluti ríkisins í fjármálafyrirtækjum í samræmi við lög, góða stjórnsýsluhætti og eigendastefnu ríkisins.

Frá þessu er sagt í frétt á vef fjármála- og efnahagsráðuneytisins.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×