Gleymdi sér og augnabliki síðar rigndi gleri Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 18. desember 2015 13:46 Löng bílaröð myndaðist frá Höfðabakkabrúnni og alla leið niður að Grensásvegi. Þessi mynd er tekin þar sem Réttarholtsvegur fer yfir Miklubraut. Vísir/Egill
Ökumaður flutningabíls á leiðinni austur fyrir fjall með glerplötur ætlaði að beygja útaf Vesturlandsvegi við bensínstöð N1 í Ártúnsholti til að þurfa ekki að aka undir Höfðabakkabrúna. Hann var hins vegar af einhverjum ástæðum annars hugar og sekúndum síðar regndi glerbrotum yfir bíla beggja vegna flutningabílsins. Yfirmaður hjá umferðardeild lögreglu segir mikla heppni að enginn hafi slasast þegar glerplöturnar mölbrotnuðu þegar bílnum var ekið undir brúna. Löng bílaröð myndaðist í um klukkustund allt frá Höfðabakkabrúnni og niður á Grensásveg á sjöunda tímanum í gærkvöldi vegna slyssins. Maðurinn ók flutningabíl með opnum gámi og stóðu glerplötur upp úr gámnum.Hreinsunarlið að störfum í klukkustund „Ökumaðurinn ætlaði að beygja hjá N1 til að losna við að fara undir brúna. Hann gleymdi sér augnablik á kaflanum og vissi ekki fyrr en hann hafði rekið glerið undir brúna,“ segir Ómar Smári Ármannsson, yfirmaður á umferðardeild lögreglu. Hann segir bíl hafa verið beggja vegna flutningabílsins sem hafi fengið yfir sig mikið magn glers. Mikla mildi megi telja að enginn hafi slasast. Veginum var lokað rétt vestan við Höfðabakkabrúna og hreinsunarlið kallað út. Magn glerbrots var afar mikið eins og sjá má í myndbandinu að neðan.Ómar Smári segir merkingar í góðu lagi á svæðinu og aðeins gleymska hafi orsakað slysið. Í aðdraganda þess að komið sé að brúnni sé merking um hæðina og þeir sem starfi við flutninga séu allajafna meðvitaðir um það. Allir geta hins vegar gleymt sér.Akstur krefst einbeitingar Aðspurður hvort grunur leiki á að ökumaðurinn hafi verið í símanum eða hvað hafi gerst segir Ómar Smári ökumanninn einan til svars. Hann hafi skiljanlega verið niðurbrotinn að hafa yfirsést þetta. „Þetta minnir á að akstur sem þessi, og allur akstur ef út í það er farið, krefst einbeitingar.“ Fleiri dæmi séu um að ökumenn flutningabíla og vörubíla með krana gleymi sér. Þá gleymist oftast að setja niður pallinn eftir að sturtað hefur verið úr bílnum eða að setja niður kranann. „Nálægir vegfarendur geta verið í stórhættu ef eitthvað ber útaf. Hingað til hefur þetta sloppið en stundum hefur munað litlu,“ segir Ómar Smári. Hann segir ástæðu til að hafa varann á víðar en við Höfðabakkabrúnna en eðlilega séu slys tíðari þar en annars staðar enda umferðarþunginn mikill þar sem umferð um Suðurlands- og Vesturlandsveg mætist.
Tengdar fréttir Flutningabíll með glerfarm rakst upp undir Höfðabakkabrú Vesturlandsvegur í austurátt lokaður. 17. desember 2015 18:56 Mest lesið Lentu í slysi á flugbraut í Kirgistan: „Börn farin að gráta og fullorðnir farnir að öskra“ Innlent Kominn með nóg af áfengisauglýsingum áhrifavalda Innlent „Hafa útsendara á sínum snærum á Íslandi“ Innlent Bandaríkin hefja árásir á Íran á ný Erlent Fréttaútsending stöðvuð til að uppræta áróður Orbáns Erlent Stígur fram og segir að kviknað hafi í honum út frá rafbyssu lögreglu Innlent Sexa lent í Reykjavík í fyrsta sinn í áratugi Innlent Spurning með sálina Innlent Kastriot og Sævar ákærðir í Dettifoss-málinu Innlent Nauðgaði konu í lok ferðar þeirra um Ísland Innlent Fleiri fréttir Lentu í slysi á flugbraut í Kirgistan: „Börn farin að gráta og fullorðnir farnir að öskra“ Sexa lent í Reykjavík í fyrsta sinn í áratugi Kominn með nóg af áfengisauglýsingum áhrifavalda „Hafa útsendara á sínum snærum á Íslandi“ Stígur fram og segir að kviknað hafi í honum út frá rafbyssu lögreglu Kastriot og Sævar ákærðir í Dettifoss-málinu NATO-ríki auki stuðning við Úkraínu Spurning með sálina Girnist enn Grænland, vændiskaup og áfengisauglýsingar áhrifavalda Viðgerð á mótor Herjólfs á áætlun Heilsufarsskoðanir skuli framkvæmdar að lágmarki fjórum sinnum Yngstu fara flestar ferðir Steypubíllinn kominn úr ánni „Ég fer og kíki og þá er þarna þetta stærðarinnar lambalæri“ Vill afnema sektir við vændiskaupum Telja gervigreind hafa verið beitt í þróaðri netárás Dró sambýliskonu sína eftir jörðinni og beitti ítrekað ofbeldi „Mjög er horft til þess sem Bandaríkjaforseti segir“ Íslendingar munu keppa um Bermúdaskálina Ein þurft að þjónusta 80 kaupendur á þremur sólarhringum Þór lætur Bandero eiga sig og sinnir öðrum málum „Draga mig, mitt nám og minn starfsferil niður í svaðið“ Funda um niðurstöðu héraðsdóms Evru-Ísland óskalandið hvenær kemur þú? Sögufræg Douglas DC 6 á leiðinni til Reykjavíkur Nauðgaði konu í lok ferðar þeirra um Ísland Átök í hvalveiðiumræðunni og fælingarmáttur lögregluaðgerða Þrjú sveitarfélög á þremur kjörtímabilum „Þetta er eins og á tónlistarhátíð“ Kristrún og Þorgerður á NATO-fundinum í Ankara Sjá meira
Flutningabíll með glerfarm rakst upp undir Höfðabakkabrú Vesturlandsvegur í austurátt lokaður. 17. desember 2015 18:56