Kaupmáttur eykst ef tekst að halda niðri verðbólgu Heimir Már Pétursson skrifar 10. júní 2015 19:00
Seðlabankinn mun væntanlega hækka vexti sína í áföngum allt þetta ár til að vinna gegn áhrifum kjarasamninga og aðgerða stjórnvalda í tengslum við þá. Bankinn hækkaði stýrivexti um 0,5 prósentur í dag og byggir þá ákvörðun á versnandi verðbólguhorfum og vaxandi eftirspurn. Stýrivextir verða fimm prósent eftir ákvörðun Seðlabankans í morgun en í rökstuðningi peningastefnunefndar segir að þótt verðbólga sé enn lítil hafi horfurnar versnað verulega og verðbólguvæntingar séu umfram fyrri spár bankans. Miðað við fyrri yfirlýsingar Seðlabankans kemur ákvörðun hans um vaxtahækkun í morgun kannski ekki á óvart. En hún mun hafa áhrif á allt efnahagslífið og þar með allan almenning.Hvað þýðir þessi ákvörðun fyrir „Jón og Gunnu?“„Þetta þýðir það fyrir Jón og Gunnu að ef okkur tekst að draga úr verðbólguaukanum, verðbólguaukningunni, sem verður í framhaldi af kjarasamningunum – og okkur mun ekki takast það ef við beitum ekki peningastefnunni - þá verður kaupmáttaraukinn hjá Jóni og Gunnu meiri en ella,“ segir Már Guðmundsson seðlabankastjóri. En Seðlabankinn boðar ekki bara 0,5 prósentustiga hækkun stýrivaxta nú heldur röð vaxtahækkana frá og með ágúst í haust. „Já það er lang líklegast að svo verði. Það fer náttúrlega eftir framvindunni eins og alltaf. Í hvaða mæli launahækkanirnar fara út í verðlagið og hvort það verður launaskrið í framhaldinu. Hvað gerist varðandi gengið, hvað gerist varðandi innlenda eftirspurn, slakinn í hagkerfinu breytist í spennu og hvað hratt gerist það,“ segir Már. Fjölmenn samtök verkafólks og verslunarmanna hafa nýlega gengið frá kjarasamningum til þriggja ára. Forystumenn þeirra hafa sagt að atvinnulífið ætti að þola þær hækkanir sem þeim fylgja án þess að hleypa þeim út í verðlagið. Seðlabankastjóri segir laun á þessu ári muni hækka um 10 prósent frá ársmeðaltalinu í fyrra til ársmeðaltalsins í ár. Framleiðniaukning þjóðarbúsins standi ekki undir því. Það sé hlutverk Seðlabankans að verðbólga haldist við markmið hans. „Sem þýðir að takist okkur það verður náttúrlega töluvert mikill kaupmáttarauki af þessum samningum. En þá kemur það einhvers staðar annars staðar fram. Étur inn í hagnaðarstig fyrirtækjanna, lækkar viðskiptaafganginn og svo framvegis,“ segir Már. Þá verði stjórnvöld að fjármagna þær aðgerðir sem gripið var til í tengslum við kjarasamninga. „Annars er þetta að leggjast á sveif og koma til viðbótar við önnur eftirspurnaraukandi öfl og hækkanir á kostnaði í hagkerfinu sem eru að eiga sér stað. Og við skulum vona að það verði ekki,“ segir Már Guðmundsson.
Mest lesið Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Samstarf Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Viðskipti innlent Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Viðskipti innlent „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Viðskipti innlent Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Viðskipti innlent Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör Viðskipti innlent Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Fleiri fréttir Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Sjá meira