Hárrétt viðbrögð sundlaugarvarða á Hellu urðu konu til lífs Birgir Olgeirsson skrifar 27. apríl 2015 12:22 Sundlaugin á Hellu. Vísir/Aðsend „
Þetta er afrek,“ segir Þórhallur Svavarsson, forstöðumaður íþróttamiðstöðvarinnar á Hellu, en hárrétt viðbrögð sundlaugarvarða urðu konu til lífs sem missti meðvitund í sundlauginni á Hellu á laugardag. Sundlaugarvörður hafði séð konuna á sundi en augnabliki síðar var hún hreyfingarlaus. Brást sundlaugarvörðurinn strax við og voru lífgunartilraunir þegar hafnar. Læknir var kallaður til og var hann snöggur á vettvang en konan var þá komin til lífs og varð ekki meint af. Þórhallur segir lögreglu og sjúkralið hafa yfirfarið myndskeið úr eftirlitsmyndavélum sundlaugarinnar og er það samdóma álit að allir sem komu að björguninni hefðu brugðist hárrétt við. „Hvort sem það var starfsfólk, sundlaugargestir eða sjúkraliðar.“ Haldinn var fundur með áfallateymi og skyndihjálparkennara í gær og voru allir sammála um að brugðist hefði verið rétt við. „Þarna skilar skyndihjálpar- og björgunarkennslan sér. Hún bjargaði mannslífi þarna.“ Hann segir mikinn létti hafa fylgt því þegar konan komst til meðvitundar á sundlaugarbakkkanum. „Þetta var svakalegur léttir. Hún var búin að synda nokkrar ferðir. Svo allt í einu hættir hún. En hún fer ekki á botninn. Hún flýtur ofan á vatninu. Þannig að það er voða erfitt fyrir sundlaugarverði að sjá að hún er meðvitundarlaus strax. Þannig að við erum alveg í skýjunum,“ segir Þórhallur. Konan hringdi í íþróttamiðstöðina í gær til að þakka starfsfólkinu fyrir og segir Þórhallur það ekki hafa verið síðri tilfinningu. „Hún ætlar að koma að kíkja á okkur mjög fljótlega.“
Tengdar fréttir Þyrla Gæslunnar sækir konu sem fannst meðvitundarlaus í sundlauginni á Hellu Þyrlan mun flytja konuna til Reykjavíkur. 25. apríl 2015 14:54 Mest lesið Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Innlent Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Innlent Halldór Árni Sveinsson er látinn Innlent Atli sagður milliliðurinn í Straumsvíkurmálinu Innlent Krefjast tæps milljarðs af félagi Bergþórs Innlent Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Innlent „Imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús“ Innlent Íslendingur reyndi að smygla milljónum í reiðufé frá Grænlandi Innlent Trump sáir efasemdafræjum í aðdraganda þingkosninga Erlent Mótmælt í Kænugarði vegna uppsagnar varnarmálaráðherrans Erlent Fleiri fréttir Telur bikblæðingu hafa valdið brunanum Fólk eigi að hugsa sig tvisvar um ef því er ekki hleypt inn á heimilið Þyrla Gæslunnar kölluð út á Landmannaleið Segir gríðarlegt álag á miðakaupendum í sumar Vilji til að framlengja ETS sérlausn og hvalveiðar brutu ekki gegn lögum Íslendingur reyndi að smygla milljónum í reiðufé frá Grænlandi Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Hálftíma dauðastríð ekki talið brot á lögum um velferð dýra Halldór Árni Sveinsson er látinn Atli sagður milliliðurinn í Straumsvíkurmálinu Krefjast tæps milljarðs af félagi Bergþórs Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Þyrla og björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði „Imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús“ „Ég væri hikandi að hafa börnin mín hjá mér“ Bæjarstjóri í beinni, gusumeistari sem biðlar til yfirvalda og sirkus Vísað á brott af hjúkrunarheimilinu í annarlegu ástandi Allt að fjörutíuföld mengun við skemmtiferðaskip Áfram Ísland með opinn fund á Skaganum Lýsa eftir Sæbjörgu Allir sem voru í ökutækjunum uppistandandi eftir áreksturinn „Þetta voru algjörlega mannleg mistök“ Endurskoða sparkvöll við Landakot Notaði dulnefni og sveik út vörur fyrir tugi milljóna „Við erum fyrst og fremst að varða leiðina heim fyrir Grindvíkinga“ Kalla inn próteinpopp „Pólitísk ákvörðun“ hvort hraðinn verði 90 eða 110 Ráðherra með „fráleita hótun“ Sjá meira
Þyrla Gæslunnar sækir konu sem fannst meðvitundarlaus í sundlauginni á Hellu Þyrlan mun flytja konuna til Reykjavíkur. 25. apríl 2015 14:54