Viðskipti innlent

Heslihnetuhakk innkallað vegna myglueiturs

Bjarki Ármannsson skrifar
Vörurnar sem um ræðir.
Vörurnar sem um ræðir. Mynd/Nathan & Olsen
Nathan & Olsen hf. hefur ákveðið að innkalla tvær tegundir heslihnetuhakks með tilteknum merkingum. Aflatoxín, sem er myglueitur, mældist yfir viðmiðunarmörkum í tiltekinni hráefnislotu og er þetta því gert til að gæta fyllstu varúðarráðstafana.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Um er að ræða hundrað gramma pakkningar af Líf hakkaðar heslihnetur og hundrað gramma pakkningar af Hagver hakkaðar heslihnetur, sem merktar eru „best fyrir“ 23. desember 2015.

Þeir sem keypt hafa þessar vörur með þessari dagsetningu eru vinsamlega beðnir um að skila þeim inn til Nathan og Olsen hf.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×