Olís semur við Opin kerfi Stefán Árni Pálsson skrifar 20. febrúar 2015 10:08 Á mynd frá vinstri, Gunnar Guðjónsson, forstjóri Opinna kerfa, Guðbrandur Sigurðsson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs OK, Sigurgísli Melberg, forstöðumaður notendalusna hjá OK, Sigurður Long forstöðumaður UT deildar hjá Olís og Einar Marinósson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Olís.
Olíuverzlun Íslands og Opin kerfi hafa að undangengnu útboði gert með sér samstarfssamning um heildarlausn hvað varðar upplýsingatækni fyrir Olís og tengd fyrirtæki. Nær samningurinn yfir allan almennan notendabúnað, netbúnað, kassakerfislausnir ásamt öðrum búnaði og þjónustu á sviði upplýsingatækni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Opnum Kerfum. Í tilkynningunni segir að með samstarfinu verði allt utanumhald og umsýsla með tölvubúnað einfölduð til muna og á sama tíma tryggður aðgangur að nýjustu tækni og hágæða búnaði. Þá verði Olís tryggður aðgangur að sérfræðingum og þjónustu- og tækniborði Opinna kerfa sem tryggir öruggan og stöðugan rekstur upplýsingakerfa með fyrirbyggjandi aðgerðum og ráðgjöf. „Við val okkar á samstarfsaðila var mikilvægt fyrir okkur að fá sterkan bakhjarl með breiða og góða vörulínu og lausnamengi sem þjónar okkar þörfum. Með því að ganga til samstarfs við öflugan aðila eins og Opin kerfi verður öll umsýsla hvað varðar upplýsingatækni okkar einfaldari og skilvirkari“, segir Sigurður Long forstöðumaður Upplýsingatæknideildar Olís „Opin kerfi er þjónustufyrirtæki og það er okkar markmið að veita viðskiptavinum okkar framúrskarandi þjónustu á öllum sviðum. Það er því mikið ánægjuefni að Olís hafi valið Opin kerfi sem samstarfsaðila sinn hvað varðar þeirra upplýsingatæknimál. Hlutverk okkar verður að sjá til þess að allar lausnir fyrirtækisins á upplýsingatæknisviðinu verða þær bestu sem í boði er hverju sinni. Opin kerfi er í mikilli sókn á þessu sviði ásamt öðrum og við hlökkum til þessa samstarfs", segir Sigurgísli Melberg, forstöðumaður notendalausna hjá Opnum kerfum. Olíuverzlun Íslands hf. var stofnað 3. október 1927. Félagið hefur fylgt þeirri þróun sem átt hefur sér stað í íslensku atvinnulífi allt frá stofnun þess. Olíuverzlun Íslands er í dag þekktari undir nafninu Olís en starfsemi félagsins er skipt upp í þrjú meginsvið: Smásölusvið, fyrirtækjasvið og fjármálasvið auk stoðsviða sem eru starfsmannasvið og markaðssvið. Félagið rekur fjölda þjónustustöðva og útibúa undir vörumerki Olís ásamt sjálfsafgreiðslustöðvum undir vörumerki ÓB - ódýrt bensín. Þá rekur félagið verslun undir nafninu Rekstrarland sem staðsett er í Mörkinni 4, Reykjavík. Opin kerfi var stofnað árið 1985 og fagnar því 30 ára afmæli á þessu ári og hefur á að skipa öflugu teymi reyndra sérfræðinga á flestum sviðum upplýsingatækni með langa reynslu af ráðgjöf, þjónustu og innleiðingu lausna hjá flestum af stærstu og kröfuhörðustu fyrirtækjum og stofnunum landsins. Opin kerfi er samstarfs- og þjónustuaðili Verne Global þar sem hýsingarlausnir fyrirtækisins og innri kerfi eru rekin í einu fullkomnasta gagnaveri heims í dag.
Mest lesið Segðu Já í vinnunni og það strax! Atvinnulíf Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Viðskipti innlent Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Viðskipti innlent Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Viðskipti innlent Sky ætlar að festa kaup á ITV Viðskipti erlent Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Viðskipti erlent Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Myndir frá Akureyri þar sem Bylgjan var í beinni Lífið samstarf Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Sjá meira