Dagsektir lagðar á smálánafyrirtækin Jón Hákon Halldórsson skrifar 30. janúar 2015 12:56 Neytendastofa tók ákvörðun í júní 2014 um að Kredia og Smálán hafi brotið gegn lögum um neytendalán. vísir/stefán
Neytendastofa hefur lagt 250 þúsund krónur dagsektir á Kredia og Smálán þar til farið hefur verið að ákvörðun stofnunarinnar um gjald fyrir flýtiþjónustu. Þetta kemur fram á vefsíðu Neytendastofu. Neytendastofa tók ákvörðun í júní 2014 um að Kredia og Smálán hafi brotið gegn lögum um neytendalán með því að reikna flýtigjald ekki inn í heildarlántökukostnað og árlega hlutfallstölu kostnaðar. Samkvæmt lögunum má árleg hlutfallstala kostnaðar ekki vera hærri en 50% að viðbættum stýrivöxtum en þegar búið er að taka flýtigjald fyrirtækjanna með í útreikninga á ÁHK verður hún töluvert hærri. Fyrirtækin kærðu ákvörðun Neytendastofu til áfrýjunarnefndar neytendamála sem staðfesti hana í desember síðastliðinn. Þrátt fyrir það hafa fyrirtækin ekki látið af háttsemi sinni og því hefur Neytendastofa nú tekið ákvörðun um að félögin skuli hvort um sig greiða dagsektir þar til látið verður af háttseminni. Eins og lög um neytendalán gera ráð fyrir hafa félögin fjórtán daga til að fara að ákvörðuninni, frá því að ákvörðun um dagsektir er tekin, áður en sektirnar byrja að leggjast á. Innan sama tíma þurfa þau að kæra dagsektarákvörðunina til áfrýjunarnefndar vilji þau ekki una henni.
Mest lesið Hagnaðurinn af Labubu sagður hafa aukist um 350 prósent Viðskipti erlent Hagnaður Arion flaug fram úr væntingum Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Vaka stýrir Collab Viðskipti innlent Orkan og Samkaup fá grænt ljós á sameiningu Viðskipti Fjárfestar í sjávarútvegi fari að líta annað Viðskipti innlent Hvenær er skynsamlegt að taka út viðbótalífeyrissparnað? Viðskipti innlent Seldi íbúðina og keypti Bitcoin í staðinn Viðskipti innlent Slæm vinnustaðamenning: Minni afköst, verri frammistaða, fleiri fjarvistir Atvinnulíf Davíð nýr framkvæmdastjóri áfangastaða hjá Arctic Adventures Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vaka stýrir Collab Hagnaður Arion flaug fram úr væntingum Fjárfestar í sjávarútvegi fari að líta annað Hvenær er skynsamlegt að taka út viðbótalífeyrissparnað? Stígur til hliðar vegna „ólíkrar sýnar“ á breytingar Davíð nýr framkvæmdastjóri áfangastaða hjá Arctic Adventures Seldi íbúðina og keypti Bitcoin í staðinn Íbúðum í byggingu fækkar Selja Lagarfoss með tæplega hálfs milljarðs tapi Ójafnrétti að konur þurfi að ganga á veikindarétt vegna barneigna Fyrirtæki í vopnaframleiðslu eru á rauðum lista Völdu Noreg fram yfir Ísland þrátt fyrir að besta lausnin væri hér Eiginkona stjórnarmanns keypti óvart í bankanum Raunverð íbúða hefur þrefaldast frá aldamótum Atli Óskar ráðinn rekstrarstjóri framleiðslu Engin U-beygja hjá Play Veitingamenn verulega óánægðir með eftirlitið Hindranir í vegi þess að lífeyrissjóðirnir taki þátt í hernaðaruppbyggingu Evrópu Spá umtalsverðum samdrætti í byggingu nýrra íbúða Falsaði fleiri bréf Veltir því upp hvort eigendum hafi verið refsað fyrir að tjá sig Hætta við yfirtökuna Harpa og Linda ráðnar forstöðumenn Stærsti samruninn í áraraðir á borð Samkeppniseftirlitsins Sylvía Kristín ráðin forstjóri Nova Íslenskur pítsastaður í Kína: „Það verður skrítnara og skrítnara að segja frá þessu“ Farþegum til landsins fjölgaði um tuttugu prósent Kvika hafi grætt töluvert á því að hafna upphaflegum tilboðum „Sem betur fer eru aðrir fiskar í sjónum“ Arion og Kvika í samrunaviðræður Sjá meira