Skuldastaða landsmanna batnað verulega Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 30. janúar 2015 15:45 Skuldastaða landsmanna hefur batnað verulega frá árslokum 2008 og eru skuldir nú 43 prósent minni en þær voru þá vísir/hari
Skuldastaða landsmanna hefur batnað verulega frá árslokum 2008 og eru skuldir nú 43 prósent minni en þær voru þá. Þá hefur eigið fé allra landsmanna vaxið. Þetta kemur fram á vef fjármála- og efnahagsráðuneytisins, sem tekið hefur saman efni um tekjur og eignir landsmanna. Tekju- og eignastaða landsmanna hefur batnað verulega frá hruni, en þá rýrnuðu eignir þeirra fimm prósent sem mest áttu um 22 prósent. Skuldastaða þessa hóps hefur einnig batnað og skuldar hópurinn nú allt að 18 prósent minna en við árslok 2008 að raunvirði. Þegar eignir og skuldir 95 prósent landsmanna á verðlagi ársins 2013 eru skoðaðar sést að eignastaða 95 prósent þjóðarinnar hefur batnað eftir að hún dróst saman að raunvirði um 26 prósent í fjármálakreppunni. Eigið fé landsmanna, hvort sem um ræðir þau fimm prósent sem mest eiga eða aðra landsmanna, óx samhliða og mjög ört fram að hruni. Eigið fé óx meira hjá fámennari hópnum en hinum. Eigið fé minnkaði jafnframt meira við hrunið hjá 95 prósent hópnum en hjá ríkustu fimm prósent. Síðustu tvö árin hefur það þó í fyrsta sinn verið meira hjá stærri hópnum en hjá þeim fimm prósentum sem mest eiga. Um 200 fjölskyldur tilheyra þeim 0,1% hópi sem mest á, en fjöldinn var um 140 árið 1992. Hlutdeild þessa hóps í tekjum landsmanna var mikil, ekki síst árin fyrir fjármálakreppuna. Þetta gildir einkum um árið 2007. Eftir það féll hlutdeild hópsins í tekjum mjög mikið. Hlutdeild hópsins í eignum hafði meira en tvöfaldast frá árinu 1992 en hefur minnkað stöðugt eftir hrun. Hlutdeild þessa hóps í skuldum landsmanna óx minna en annarra árin fyrir hrun og hefur skuldastaðan batnað frá þessum tíma en hlutdeild í eigin fé óx mest.
Mest lesið Segðu Já í vinnunni og það strax! Atvinnulíf Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Viðskipti innlent Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Viðskipti innlent Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Viðskipti erlent Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Viðskipti innlent Sky ætlar að festa kaup á ITV Viðskipti erlent Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Myndir frá Akureyri þar sem Bylgjan var í beinni Lífið samstarf Fá AA- í einkunn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Sjá meira