Viðskipti innlent

Afkoma Íslandsbanka umfram væntingar

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Birna Einarsdóttir segir að mat Fitch sé til þess fallin að skila bankanum hagstæðari kjörum.
Birna Einarsdóttir segir að mat Fitch sé til þess fallin að skila bankanum hagstæðari kjörum. Vísir/Ernir
„Við erum ánægð með afkomu bankans á fyrsta ársfjórðungi sem var umfram væntingar okkar. Kostnaður heldur áfram að lækka enda mikilvægt að styrkja enn frekar arðsemi af reglulegri starfsemi,“ segir Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, vegna uppgjörs fyrsta fjórðungs. Uppgjörið var birt í gær.

Hagnaður bankans eftir skatta var 5,4 milljarðar króna á fyrsta ársfjórðungi 2015 samanborið við 8,3 milljarða króna á sama tímabili 2014 en þá voru tekjur af einskiptisliðum umfangsmeiri. Arðsemi eigin fjár eftir skatta var 11,8% á fjórðungnum samanborið við 19,3% á sama tímabili 2014.

„Góður árangur í rekstri bankans hefur skilað því að lánshæfismatsfyrirtækið Fitch Ratings mat bankann, fyrstan hér á landi frá árinu 2008, í fjárfestingarflokk með stöðugum horfum. Sú niðurstaða er til þess fallin að skila bankanum hagstæðari kjörum í komandi skuldabréfaútgáfum bankans,“ segir Birna.

Aukning í nýjum húsnæðislánum var tæp 60% á fjórðungnum miðað við sama tímabil í fyrra. Birna segir vaxandi eftirspurn eftir lánum hjá viðskiptavinum sem eru að festa kaup á sinni fyrstu íbúð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×