Davíð nýr framkvæmdastjóri Dohop Stefán Árni Pálsson skrifar 3. febrúar 2015 14:36 Davíð er til hægri á myndinni og Kristján til vinstri. mynd/aðsend
Davíð Gunnarsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Dohop ehf. Hann tekur við starfinu af Kristjáni Guðna Bjarnasyni sem hefur stýrt félaginu frá því á vormánuðum 2010. Kristján verður þó áfram hjá Dohop, nú sem tæknistjóri og stýrir allri vöruþróun og tæknimálum. Davíð hefur verið hjá Dohop frá ársbyrjun 2009, að undanskildu árinu 2013 þegar hann starfaði um skeið hjá HF Verðbréfum. Davíð var upphaflega ráðinn til Dohop sem markaðsstjóri en hefur einnig sinnt sölu, viðskiptaþróun og tekjustjórnun ásamt því að taka virkan þátt í vöruþróun. Davíð vann hjá Kaupþingi á árunum 2005 til 2008, en var þar áður formaður Stúdentaráðs Háskóla Íslands. „Félagið stendur á ákveðnum tímamótum og segja má að nú sé að hefjast næsta vaxtartímabil í sögu Dohop. Við þurfum að leggja enn meiri áherslu á tæknina okkar og vöruþróun og ég get nú einbeitt mér að því,” segir Kristján. „Við ætlum að vaxa hratt á næstu árum, bæta við fólki bæði hér heima og erlendis og sækja fram á nýjum mörkuðum. Við vorum að ljúka besta rekstrarári í sögu félagsins og framundan eru mörg tækifæri sem blasa við,” segir Davíð. Dohop var stofnað á Íslandi árið 2004 og rekur ferðaleitarvefinn Dohop.is. Hjá félaginu starfa 15 manns. Vefurinn var valinn besti flugleitarvefur í heimi á World Travel Awards árið 2014, en Dohop býður einnig upp á leit að hótelum og bílaleigubílum.
Mest lesið Flug á sex þúsund krónur: easyJet tvöfaldar umsvif sín hérlendis Viðskipti innlent Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Borgar sig að leyfa fólki að borga það sem það vill Viðskipti innlent Stofnuðu nýtt félag þegar þeir sáu í hvað stefndi hjá Capacent Viðskipti innlent Innkalla kerti vegna eldhættu Neytendur Fordæmalaus skortur á skötu Neytendur Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Smíðar sjókvíar og báta á Djúpavogi fyrir fiskeldi Viðskipti innlent Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Viðskipti innlent Meta kaupir sig frá málaferlum vegna barnavelferðar Viðskipti erlent Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira