Wow Air áfrýjar til Hæstaréttar 19. janúar 2015 15:06
WOW Air hefur ákveðið að kæra til Hæstaréttar þá niðurstöðu héraðsdóms að vísa frá dómsmáli félagsins sem höfðað var vegna úthlutunar afgreiðslutíma á Keflavíkurflugvelli. Páll Rúnar M. Kristjánsson lögmaður Wow Air staðfestir þetta, en hann segir Hæstarétt áður hafa komist að þeirri niðurstöðu að taka beri þetta sama mál til efnismeðferðar. „Og á WOW Air ekki von á öðru en að Hæstiréttur komist aftur að sömu niðurstöðu,“ segir Páll Rúnar. Málið snýr að úthlutun afgreiðslutíma á Keflavíkurflugvelli en Wow air lagði inn kvörtun til Samkeppniseftirlitsins árið 2013 vegna úthlutunar afgreiðslutíma sem flugfélagið taldi koma í veg fyrir að hægt væri að veita Icelandair samkeppni hvað varðar flug til Bandaríkjanna. „Mál þetta snýst um réttmæti þess að markaðsráðandi fyrirtæki geti setið eitt um ákveðna afgreiðslutíma á Keflavíkurflugvelli sem eru nauðsynlegir þeim sem vilja standa í samkeppni í flugrekstri til og frá landinu,“ segir Páll Rúnar. Áður höfðu fyrirtækin Iceland Express og Delta Airways kvartað yfir fyrirkomulaginu og talið það torvelda samkeppni. „Samkeppniseftirlitið hefur komist að þeirri niðurstöðu að umrætt fyrirkomulag raski samkeppni og að færa þurfi afgreiðslutíma á milli flugfélaga til að samkeppni geti átt sér stað á jafnræðisgrundvelli. Þetta dómsmál snýst um þá afstöðu og hvort að þessi tilfærsla á afgreiðslutímum sé lögmæt,“ segir Páll Rúnar. Ráðgefandi álits EFTA dómstólsins hefur verið aflað undir rekstri málsins. Þar segir Páll koma fram að samkeppnisyfirvöldum EES-ríkis sé heimilt að beina fyrirmælum til þeirra fyrirtækja sem hlut eiga að máli ef samkeppnisástæður mæla með því. „Það er því heimilt að mati EFTA dómstólsins að flytja afgreiðslutíma á milli flugrekenda á grundvelli samkeppnislöggjafar. Miða við þá afstöðu EFTA dómstólsins var því eðilegt og rétt af Samkeppniseftirlitinu að aðhafast í umræddu máli.“
Mest lesið Segðu Já í vinnunni og það strax! Atvinnulíf Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Viðskipti innlent Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Viðskipti innlent Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Viðskipti erlent Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Viðskipti innlent Sky ætlar að festa kaup á ITV Viðskipti erlent Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Myndir frá Akureyri þar sem Bylgjan var í beinni Lífið samstarf Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Sjá meira