Stærsta kalkþörungaverksmiðja landsins í bígerð í Súðavík Ingvar Haraldsson skrifar 29. júlí 2015 10:15 Svona gæti verksmiðjan í Súðavík litið út. Kalkþörunganámið verður nær helmingi meira en í kalkþörungaverksmiðjunni á Bíldudal.
Íslenska kalkþörungafélagið hyggst reisa stærstu kalkþörungaverksmiðju landsins í Súðavík. Stefnt er á að framkvæmdir við verksmiðjuna hefjist eftir tvö og hálft til þrjú ár. Um tuttugu manns muni starfa í verksmiðjunni. Sækja á 120 þúsund rúmmetra af kalkþörungi árlega fyrir vinnslu í verksmiðjuna við Æðey og Kaldalón í Ísafjarðardjúpi. Kalkþörunganámið verður nær helmingi meira en í einu kalkþörungaverksmiðju landsins sem Íslenska kalkþörungafélagið rekur á Bíldudal. Áformin eru þó háð umhverfismati hjá Umhverfisstofnun. Sigurður R. Helgason, stjórnarformaður Íslenska kalkþörungafélagsins, á þó ekki von á öðru en að Umhverfisstofnun leggi blessun sína yfir starfsemina. Sigurður telur verksmiðjuna geta haft afar jákvæð áhrif á atvinnulíf við Ísafjarðardjúp. „Sérstaklega þar sem byggðaþróun hefur ekki verið upp á það besta á þessu svæði,“ segir Sigurður. Verksmiðjan er enn á hönnunarstigi. Einar Sveinn Ólafsson, framkvæmdastjóri Íslenska kalkþörungafélagsins, segir að fjárfestingar vegna verksmiðjunnar á Bíldudal hafi numið átta milljónum evra, tæplega 1,2 milljörðum króna. Gera megi ráð fyrir öðru eins vegna nýju verksmiðjunnar í Súðavík. Þá hefur Marigot Ltd., móðurfélag Íslenska kalkþörungafélagsins, hug á blautþörungavinnslu í Stykkishólmi og vinnur nú að hagkvæmnikönnun vegna þess. Þau áform eru þó komin skemmra á veg en fyrirhuguð verksmiðja í Súðavík að sögn Sigurðar. Kalkþörungar eru m.a. nýttir í fóður fyrir húsdýr, til vatnshreinsunar og í bætiefni til manneldis. Sigurður segir afurðir kalkþörungafélagsins vera seldar um allan heim, m.a. ofan í úlfalda í Sádi-Arabíu og til Ástralíu.
Mest lesið Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Viðskipti innlent Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Viðskipti innlent „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Viðskipti innlent Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Viðskipti innlent „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Samstarf Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör Viðskipti innlent Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Fleiri fréttir Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Sjá meira