Biðja til almættisins að Katrín sigrist á áfallinu Stefán Ó. Jónsson skrifar 7. júlí 2015 17:39 Katrín Björk Guðjónsdóttir mynd/facebook
Vinir og aðstandendur Katrínar Bjarkar Guðjónsdóttur, 22 ára stúlku frá Flateyri, hafa stofnað styrktarsjóð henni til stuðnings en Katrín, þrátt fyrir ungan aldur, fékk á dögunum sína aðra heilablæðingu.Á síðu sem stofnuð hefur verið um söfnunarsjóðinn er saga Katrínar rakin en fyrri heilablæðinguna fékk hún undir lok síðasta árs. Blæðingin hafði í för með sér afar langa og mikla endurhæfingu - þannig að „henni var kippt út úr hringðu lífsins.“ „Hún hefur notið rækilegs stuðnings foreldra sinna, Bjarnheiðar Jónu Ívarsdóttur og Guðjóns Guðmundssonar frá Flateyri. Unnusti hennar Ásgeir Gíslason hefur staðið vaktina með Katrínu á sérlega aðdáunarverðan hátt, sem og fjölskylda hans frá Ísafirði. Systur hennar og fjölskyldur þeirra hafa einnig tekið mikinn þátt í þessu ferli öllu, sem og fjölmargir aðrir velunnarar.” Allt gekk vonum framar og frá því fyrir áramót og fram til 14. júní hafði endurhæfing Katrínar gengið vel að sögn aðstandenda. „Því var áfallið þann dag afar mikið, þegar flytja þurfti hana með sjúkraflugi suður eftir aðra heilablæðingu. Aðgerð var gerð á henni sem tókst vel að sögn lækna. Fjölskylda hennar og tengdafólk með unnusta hennar, í broddi fylkingar hafa verið nær samfellt við hlið hennar þennan tíma,” segir á síðunni. Fyrir 6 vikum fékk ég heilablæðingu. Hún var fljót að ganga til baka og eftir viku var ég útskrifuð af sjúkrahúsinu og á...Posted by Katrín Björk Guðjónsdóttir on Thursday, 1 January 2015 Katrín var síðar flutt af gjörgæslu yfir á almenna deild á Landspítalanum, þar sem hún dvelur nú. „Því miður er ekki ólíklegt að enn geti orðið sveiflur á líðan hennar, enda er hún enn mikið veik og með takmarkaða tjáningu,“ segir á síðunni en þó er bætt við að læknar á spítalanum hafi bent á mjög mörg tilvik um álíka veikindi svona ungs fólks. „Þar sem unnt var að sigrast á álíka áfalli, með þrotlausri vinnu og endurhæfingu, á það trúum við. Um það biðjum við til almættisins, að Katrín verði í þeim hópi.“ Aðstandendur söfnunarinnar biðja alla þá sem eru aflögufærir að leggja fjölskyldunni lið og aðstoða þannig við endurhæfingu Katrínar með frjálsum framlögum. Styrktarreikningur hefur reikningsnúmerið 0515-14-410407 og kennitöluna 470515-1710.
Mest lesið Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Innlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Innlent Fleiri fréttir Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Sjá meira