Viðskipti innlent

Birna Einarsdóttir talin áhrifamest

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Birna Einarsdóttir er bankastjóri Íslandsbanka.
Birna Einarsdóttir er bankastjóri Íslandsbanka.
Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsabanka,  hefur verið valin áhrifamesta konan þegar horft er til atvinnulífs og þjóðmála. Viðskiptablaðið og stór hópur álitsgjafa hafa valið tíu áhrifamestu konurnar í sérblaðinu Áhrifakonur sem fylgir Viðskiptablaðinu í dag.

Svona er listinn yfir áhrifamestu konurnar:
Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka
​Guðbjörg M. Matthíasdóttir, aðaleigandi Ísfélags Vestmannaeyja
Sigrún Ragna Ólafsdóttir, forstjóri Vís
Ragna Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar
Ólöf Nordal, innanríkisráðherra
Katrín Olga Jóhannesdóttir, stjórnarformaður Já
Rannveig Rist, forstjóri Alcan á Íslandi
Ásthildur Otharsdóttir, stjórformaður Marel
Margrét Guðmundsdóttir, stjórnarformaður N1
Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra





Fleiri fréttir

Sjá meira


×