Viðskipti innlent

Þróun vaxta ræðst af komandi kjarasamningum

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Már Guðmundsson og Arnór Sighvatsson hittu blaðamenn.
Már Guðmundsson og Arnór Sighvatsson hittu blaðamenn. fréttablaðið/vilhelm
Tilkynnt var í gær að Seðlabanki Íslands myndi halda vöxtum óbreyttum. Meginvextir bankans verða því áfram 4,5 prósent. Már Guðmundsson seðlabankastjóri og Arnór Sighvatsson aðstoðarseðlabankastjóri gerðu grein fyrir ákvörðun Peningastefnunefndar á fundi í gær.

Þar er vísað í nýbirta þjóðhagsreikninga þar sem fram kemur að hagvöxtur var á síðasta ári 1,9%, sem er í takt við það sem Seðlabankinn áætlaði í febrúar. „Nýju gögnin staðfesta það mat nefndarinnar, sem fram kom í síðustu yfirlýsingu, að fyrri áætlanir um hagvöxt á fyrstu þremur fjórðungum ársins hafi falið í sér vanmat og breyta því ekki í meginatriðum mati nefndarinnar á nýlegum hagvexti og efnahagshorfum,“ segir í greinargerð Peningastefnunefndar.

Þá segir að verðbólga hafi mælst 0,8% undanfarna mánuði og lítils háttar lækkun verðlags mælist sé horft fram hjá áhrifum húsnæðiskostnaðar. „Lítil alþjóðleg verðbólga og stöðugt gengi krónu halda aftur af verðbólgu og vega á móti áhrifum töluverðra launahækkana innanlands,“ segir í greinargerðinni. Vísbendingar séu um að verðbólguvæntingar hafi hækkað undanfarnar vikur sem mögulega endurspegli væntingar um að niðurstaða komandi kjarasamninga muni ekki samrýmast verðbólgumarkmiðinu.

Þá ítrekar Seðlabankinn að haldist verðbólga undir markmiði og launahækkanir verði í komandi kjarasamningum í samræmi við verðbólgumarkmiðið gætu skapast forsendur fyrir frekari lækkun nafnvaxta. Miklar launahækkanir og vöxtur eftirspurnar gætu hins vegar valdið því að hækka þurfi vexti á ný.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×