Viðskipti innlent

Hagvísar benda til aukins hagvaxtar

ingvar haraldsson skrifar
Hagvísar benda til þess að hagvöxtur muni aukast á fyrri hlut ársins.
Hagvísar benda til þess að hagvöxtur muni aukast á fyrri hlut ársins. vísir/valli
Hagvísar benda til þess að hagvöxtur muni aukast á fyrri hlut ársins. Þetta kemur fram í greiningu Analytica. Leiðandi hagvísir Analytica hækkaði um 0,4 prósent í febrúar og er þetta sjötti mánuðurinn í röð sem hagvísirinn bendir til aukins hagvaxtar.

Fjölgun ferðamanna og aukning fiskafla sem eru aðaldrifkraftarnir að mati Analytcia. Fyrirtækið bendir á að enn sé óvissa á vinnumarkaði hérlendis auk þess að ýmsir áhættuþættir séu í alþjóðastjórnmálum sem ógnað geti hagvexti.

Hagvísirinn er vísitala sem gefur vísbendingu um efnahagsumsvif að sex mánuðum liðnum. Leiðandi hagvísir Analytica er samansettur úr sex undirþáttum af mismunandi toga. Um er að ræða aflamagn, debetkortaveltu, ferðamannafjölda, heimsvísitölu hlutabréfa, innflutning og væntingavísitölu Gallup. Í febrúar hækkuðu allir undirþættirnir sex frá fyrra ári líkt og í desember.

Leiðandi hagvísir Analytica í febrúar tekur gildið 102,2. Það gefur til kynna að framleiðslu sex mánuðum síðar þ.e. í ágúst 2015. Hagvísirinn tekur gildið 100 þegar búist er við að landsframleiðsla sé í takt við langtímaleitni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×