Segist enga hagsmuna eiga vegna nýs frumvarps Jón Hákon Halldórsson skrifar 18. mars 2015 14:08 Matorka hyggst hefja bleikjueldi í kjördæmi Ragnheiðar Elínar Árnadóttur iðnaðarráðherra.
Eiríkur Svavarsson, einn af eigendum Matorku ehf, segir að verið sé að leitast við að kasta rýrð á störf sín í laganefnd Lögmannafélags Íslands í ljósi eignarhaldsins á Matorku. Viðskiptablaðið greindi frá því í síðustu viku að Matorka fengi hundruð milljóna króna í ívilnun vegna bleikjueldis sem til stendur að hefja á Reykjanesi. Eiríkur mætti á vegum laganefndarinnar fyrir atvinnuveganefnd Alþingis til að gera grein fyrir umsögn nefndarinnar um nýtt frumvarp til laga um ívilnanir. Eiríkur hefur verið gagnrýndur fyrir að hafa ekki gert grein fyrir stöðu sinni hjá Matorku. Eiríkur segir í tilkynningu sem hann sendi atvinnuveganefnd að umrædd heildarlög sem Atvinnuveganefnd óskaði umsagnar laganefndar LMFÍ snerti ekki umsókn Matorku ehf. um nýfjárfestingasamning enda byggr umsókn Matorku, frá því í desember 2013, á lögum frá árinu 2010 um ívilnanir vegna nýfjárfestinga á Íslandi. Eiríkur segir að umsókn Matorku ehf. hafi verið á grundvelli þeirra laga en ekki frumvarpsins sem óskað var umsagnar um. „Ég átti því ekki hagsmuna að gæta á þessum fundi eða gagnvart efnisatriðum þessa frumvarps,“ segir Eiríkur. Eiríkur segir að með mjög skömmum fyrirvara hafi atvinnuveganefnd óskað eftir að fulltrúi úr laganefnd kæmi fyrir nefndina þann 30. október síðastliðinn. „Þar sem tveir aðrir fulltrúar laganefndar gátu ekki mætt með svo skömmum fyrirvara var þess óskað að ég mætti. Á fundinum fór ég yfir þá umsögn sem laganefnd LMFÍ hafði unnið f.h. nefndarinnar. Í engu var þar vikið að Matorku eða umsóknum um ívilnanir almennt,“ segir Eiríkur.
Alþingi Mest lesið Framleiðslustöðvunin högg fyrir fyrirtækið og viðskiptavini Neytendur „Það er aukaatriði í þessu hvað ég var lengi þarna“ Neytendur Spá óbreyttum stýrivöxtum Viðskipti innlent Apótek opnað í fyrsta sinn á Flúðum Viðskipti innlent Stórhækkun á verði áls jákvæð fyrir samfélagið Viðskipti innlent Þúsundir hringja í Skattinn Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Íris ráðin til SI Viðskipti innlent Besti dagur Wall Street frá því stríðið hófst Viðskipti erlent Eigum við að vera kurteis í samskiptum við gervigreindina? Atvinnulíf Fleiri fréttir Spá óbreyttum stýrivöxtum Apótek opnað í fyrsta sinn á Flúðum Stórhækkun á verði áls jákvæð fyrir samfélagið Íris ráðin til SI Þúsundir hringja í Skattinn „Það er bara ólöglegt“ Fjöldi apóteka sameinast undir vörumerki Apótekarans Fara fram á lögbann á Isavia Engar forsendur fyrir því að hækkanir skili sér að fullu út í bensínverð Framtalsfrestur að renna út: „Það gengur alveg rosalega vel“ Sekta Sýn fyrir að sýna efni ekki við hæfi barna fyrir vatnaskil Bjartur og Vésteinn Örn til SFF Leggja til verðþak vegna olíufélaga sem þyki varla treystandi Snarpri en verðmætri loðnuvertíð að ljúka Jón Ásgeir fær ekki meira frá ríkinu Magnús hættir hjá Orkusölunni Eiga í viðræðum um sjónvarpsinnviðafélag Hulda tekur við nýrri deild hjá Eimskip „Dómstólar staðfesta að ostur er ostur“ Stefna á að banna gervigreindarklám í Evrópu Spá líka vaxtahækkun en enn meiri verðbólgu Verslun Kappahl í Smáralind og netverslun opnaðar á laugardag Síminn og Sýn semja um kaup á Vísi og útvarpsstöðvum Telja bensínlítrann tuttugu krónum of dýran „Vonandi verður ein vaxtahækkun nóg“ Opna menningarmiðstöð í Smáralind Spá 0,25 prósenta hækkun stýrivaxta Borgar sig að taka út séreignasparnaðinn og ávaxta sjálfur? Þúfan veltir þungu flatbökuhlassi Óskar Ingi fjármálastjóri Beru Sjá meira