Vöruhús Eimskipa í Árósum stækkar um 15 þúsund fermetra Jón Hákon Halldórsson skrifar 23. febrúar 2015 21:50 Árósar í Danmörku.
Eimskipafélag Íslands tekur yfir 15.500 fermetra vöruhús Damco í Danmörku. Eimskip starfrækir 6.000 fermetra vöruhús í Danmörku við hlið Damco og verður hið nýja vöruhús samtals 21.500 fermetrar. Eftir breytinguna verður Eimskip stærsti rekstraraðili í alhliða vöruhúsaþjónustu í höfninni í Árósum. Yfir 600.000 gámar fara um höfnina í Árósum á ári hverju og gerir það hana að næststærstu höfn Skandinavíu. Vöruhúsið er staðsett innan gámahafnar með beint aðgengi að höfninni. Damco hefur starfrækt vöruhúsið í Árósum síðan árið 2003. Aðaláhersla hefur verið á hýsingu, pökkun, stórflutninga, umskipun, gámahleðslu, dreifingu, vörutínslu og merkingu. Peter Hag og Preben Nielsen munu stýra daglegri starfsemi. Í kjölfar breytinganna verða starfsmenn Eimskips í vöruhúsinu 45 talsins og er áætlað að árleg velta Eimskips í Danmörku muni aukast um þrjár milljónir evra. „Ég er ánægður að sjá þetta verkefni í höfn. Frá og með 1. mars verður vöruhúsið hluti af starfsemi Eimskips, bæði gámahleðslustöðin og vöruhúsastarfsemin. Við hlökkum til samstarfsins með viðskiptavinum og starfsmönnum vöruhússins. Kaupin munu án efa styrkja starfsemi okkar í Árósum enn frekar og eru þau liður í frekari vexti Eimskips, bæði hér í Danmörku og á Norður-Atlantshafi,“ segir Sigurður Orri Jónsson, framkvæmdastjóri Eimskips í Danmörku
Mest lesið Samherji gæti tvöfaldast Viðskipti innlent Hámark tvær vikur í heilsutengd áramótaheit með eiginkonunni Atvinnulíf Gert að afhenda búslóðina eftir að hafa haldið henni í gíslingu Neytendur Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað Neytendur Fær íshellaferð ekki endurgreidda Neytendur Ný tækni, ný kynslóð, ný viðhorf: Yngsti sölumaðurinn eins árs Atvinnulíf Eldsneytisverð gæti lækkað um tugi króna á nýju ári Neytendur Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Von, hugrekki og virðing við lok lífs Skoðun Fleiri fréttir Samherji gæti tvöfaldast Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Sjá meira