Jákvætt skref í okkar samfélagi Eymundur Eymundsson skrifar 10. desember 2015 07:00 Manneskjan er í alls konar litum og gerðum en stundum þurfum við aðstoð og þá getur verið gott að vita hvert hægt er að leita. Á Akureyri var lögð niður dagdeild geðdeildar þegar hrunið kom vegna sparnaðar en við vitum að vandamál hverfa ekki og fólk þarf hjálp og þess vegna var Grófin geðverndarmiðstöð stofnuð hinn 10. október 2013. Óhætt er að segja að þörfin var og er mikil þar sem daglega mæta 20 til 25 manns sem segir sitt eftir tveggja ára starf að eitthvað er að virka sem fær fólkið til að koma og takast á við sjálft sig með öðrum á jafningjagrunni. Við fengum hvatningarverðlaun frá forvarna- og fræðslusjóðnum „Þú getur“ fyrir framúrskarandi forvarnar- og fræðslustarf sem vakið hefur athygli og hjálpað mörgum að stíga skrefið í átt að bættum lífsgæðum. Um leið var fjórum einstaklingum úr Grófinni sem eru í háskólanámi veittir námsstyrkir sem er ómetanlegt og gefur öðrum um leið von um að margt sé hægt með góðum stuðningi.Hugarafl og Grófin geðverndarmiðstöð Ég fór suður haustið 2009 í Ráðgjafarskóla og var búinn að lesa mér til um Hugarafl og fannst þessi hugmyndafræði um valdeflingu og batamódelið spennandi en á leiðinni þangað hugsaði ég „nei, ég er ekki svona geðveikur“, var með ranghugmyndir og fordóma gagnvart öðrum og þekki það þegar aðrir hugsa það sama sem getur hindrað fólk í að leita sér aðstoðar. Ég tók skrefið í Hugarafl og sneri ekki heim fyrr en þremur árum seinna, ég sé ekki eftir þeirri vinnu í sjálfum mér og sá marga einstaklinga ná góðum bata ef ekki fullum bata af sínum geðröskunum en fyrst og fremst öðlast bætt lífsgæði sem við öll þráum og ef þú ert að hugsa það sama og ég gerði gefðu þessu tíma og tækifæri. Ég var á miklum lyfjum en er á litlu í dag með því að nýta mér m.a. Hugarafl. Hugsanlega verð ég lyfjalaus einhvern tímann en það er ekki markmið í sjálfu sér. Sama má segja að hjá okkur í Grófinni hafa menn getað minnkað við sig lyf eftir að hafa tekið skrefið og nýtt sér hjálpina með að hafa sinn lækni með í ráðum. Grófin geðverndarmiðstöð vinnur eftir hugmyndafræði Hugarafls sem er valdefling og batamódel sem felur m.a. í sér að ná tökum á eigin lífi með því að efla sjálfan sig með öðrum notendum og fagmönnum á jafningjagrunni.Heitt á könnunni Ef þú ert að einangra þig, ert með grímu til að fela þína vanlíðan og finnst allt vonlaust og sérð ekki tilgang með þessu lífi þá sakar ekki að koma við og kynna sér starfsemina. Geðraskanir fara nefnilega ekki í manngreinarálit frekar en önnur áföll sem fólk verður fyrir í lífinu en að fá sér kaffi og spjalla kostar ekkert og hver veit nema að það gæti hjálpað. Maður veit víst ekki nema maður gefi sér tækifæri og tíma og miðað við fjöldann sem kemur til okkar gæti verið að þetta hentaði þér. Grófin er staðsett í Hafnarstræti 95., 4. hæð, fyrir ofan Apótekarann í göngugötunni á Akureyri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega Skoðun Halldór 29.08.26 Halldór Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson Skoðun Skoðun Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Barist fyrir veröld sem var Elías Þórsson skrifar Skoðun Við höfum tekið margar góðar ákvarðanir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kjósum með opnum huga Kristín A. Árnadóttir skrifar Skoðun Um Kanada og Ísland Eliza Reid skrifar Skoðun Frístundamiðstöðvar lagðar niður, á hverjum bitnar það? Sigrún Ósk Arnardóttir skrifar Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar
Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar