Sjálfstæðismenn komu í veg fyrir lengra jólafrí borgarfulltrúa Bjarki Ármannsson skrifar 15. desember 2015 19:13 Kjartan Magnússon telur sjaldan eða aldrei hafa verið ríkara tilefni til þess að nýta fundi borgarstjórnar til að vinna að mikilvægum málum. Vísir/Vilhelm
Tillaga meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur um að fella niður fyrri borgarstjórnarfund í janúar, og lengja þannig jólafrí borgarfulltrúa um tvær vikur, var felld á borgarstjórnarfundi nú í kvöld. Fulltrúar allra flokka nema Sjálfstæðisflokksins greiddu atkvæði með tillögunni. „Að undanförnu hefur gætt sívaxandi tilhneigingar hjá núverandi borgarstjórnarmeirihluta að draga úr vægi borgarstjórnarfunda, t.d. með því að vísa fjölmörgum tillögum, sem þar eru fluttar af borgarfulltrúum, til borgarráðs þar sem þeim er ráðið til lykta á lokuðum fundum,“ segir í bókun Kjartans Magnússonar, borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, við afgreiðslu málsins. „Tillaga borgarstjórnarmeirihlutans um að fella niður fyrri fund borgarstjórnar í janúar og lengja þannig jólafrí borgarfulltrúa, er af sama meiði.“ Segir Kjartan sjaldan eða aldrei hafa verið ríkara tilefni til þess að nýta fundi borgarstjórnar til að vinna að mikilvægum málum, til dæmis fjármálum borgarinnar. Borgarfulltrúar Samfylkingar, Bjartrar framtíðar, Pírata, Vinstri grænna og Framsóknarflokksins og flugvallarvina greiddu atkvæði með því að fella niður fundinn. Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins greiddu allir atkvæði gegn því. Alls fór atkvæðagreiðslan því 11-4 en slíkar tillögur þarf að samþykkja mótatkvæðalaust. Verður því fundurinn haldinn þann 5. janúar næstkomandi.
Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Innlent Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Innlent Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Erlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Fleiri fréttir „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Sjá meira