Hjálpræðisherinn á leið úr miðborginni eftir aldar veru þar Heimir Már Pétursson skrifar 15. desember 2015 20:15
Aldarlöngu safnaðarstarfi og gistiþjónustu Hjálpræðishersins í miðborg Reykjavíkur lýkur á næsta ári. Húsnæði hersins er til sölu og stefnir hann að því að reisa safnaðarheimili utan miðborgarinnar. Hús Hjálpræðishersins var byggt árið 1916 og síðan þá hefur verið rekið þar öflugt safnaðarstarf og ýmis þjónusta við þá sem halloka hafa farið í þjóðfélaginu. Strax frá upphafi var rekin gistiþjónusta í húsinu, fyrst sjómannaheimili en síðan almenn gistiþjónusta á sumrin fyrir ferðamenn. Á veturna búa hins vegar um fjörutíu erlendir námsmenn á Hernum. Gunnar Eide, deildarstjóri hersins, segir húsnæðið gamalt og það henti ekki lengur starfsemi Hjálpræðishersins eins og hún er í dag. „Við stefnum að því að færa okkur aðeins frá miðborginni. Þó ekki langt í burtu en hvert liggur ekki fyrir,“ segir Gunnar Húsið er nú til sölu og segir Gunnar Herinn vera að skoða tilboð frá aðila sem hyggist reka þar gistiþjónustu. En verðmæti hússins liggur ekki hvað síst í gistileyfinu því kvóti er á slíkri starfsemi í miðborginni. Herinn hættir hins vegar rekstri gistiheimilis á nýjum stað. „Það hefur ekki verið auðvelt að reka gistiheimilið fjárhagslega. Það hefur verið erfitt að skila afgangi og við teljum að slík starfsemi sé kannski ekki kjarninn í okkar starfsemi,“ segir Gunnar En það sé að boða evangelíska trú. „Boða kærleika og gera kannski það sem aðrir söfnuðir gera því við viljum gera okkar besta gagnvart öðrum manneskjum og þá sem standa höllum fæti í samfélaginu,“ segir Gunnar Jólaboð Hersins verður að þessu sinni í ráðhúsinu og slík boð munu halda áfram á nýjum stað.En ætlar Hjálpræðisherinn að kaupa notað húsnæði eða byggja nýtt? „Það hefur enn ekki verið endanlega ákveðið. Persónulega myndi ég vilja að við fengjum lóð þannig að við getum byggt nýtt hús sem svarar þörfum okkar í nútímanum ,“ segir Gunnar Eide.
Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Innlent Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Fleiri fréttir Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi Sjá meira