Innlent

Hafa flutt sex hundruð með sjúkraflugi í ár

Nadine Guðrún Yaghi skrifar
Met hefur verið slegið á árinu í sjúkraflugi frá Akureyri.
Met hefur verið slegið á árinu í sjúkraflugi frá Akureyri.
Sjúkraflutningamenn Slökkviliðs Akureyrar og flugmenn Mýflugs fluttu í síðustu viku sjúkling númer sex hundruð á þessu ári. Ferðirnar á árinu hafa alls verið 538. Í frétt á vef slökkviliðsins segir að þetta sé nýtt met og töluverð aukning frá fyrri árum.

Þá segir að helmingur sjúkrafluganna sé svokallaður forgangsflutningur þar sem sjúklingur þarf að komast með hraði á sjúkrastofnun með hærra þjónustustig. Í alvarlegustu tilfellunum fari læknir frá Sjúkrahúsi Akureyrar með en slíkt eigi við um þriðjung tilfella. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×