Viðskipti innlent

Lárus Welding og Jóhannes Baldursson á meðal sakborninga í markaðsmisnotkunarmáli Glitnis

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Lárus Welding og Jóhannes Baldursson
Lárus Welding og Jóhannes Baldursson vísir
Lárus Welding, fyrrverandi forstjóri Glitnis, og Jóhannes Baldursson, fyrrverandi framkvæmdastjóri markaðsviðskipta bankans, eru á meðal sakborninga í markaðsmisnotkunarmáli Glitnis sem sérstakur saksóknari hefur haft til rannsóknar undanfarin ár. Þetta herma heimildir Vísis.

Jóhannes var fyrr í mánuðinum dæmdur í þriggja ára fangelsi í Hæstarétti vegna BK-málsins, og þá voru bæði hann og Lárus ákærðir í Stím-málinu en dómsuppsaga verður í því næstkomandi mánudag í Héraðsdómi Reykjavíkur.

Snýr að kaupum bankans á eigin hlutabréfum og sölu þeirra

Greint var frá því á mbl.is í morgun að rannsókn á meintri markaðsmisnotkun Glitnis í aðdraganda bankahrunsins 2008 sé lokið.

Málið snýr annars vegar að kaupum Glitnis á eigin hlutabréfum og svo hins vegar að því með hvaða hætti bréfin voru seld frá bankanum. Að sögn Ólafs Þórs Haukssonar, sérstaks saksóknara, er stefnt að því að ákvörðun um hvort ákæra verði gefin út í málinu, eða ekki, liggi fyrir á fyrstu þremur mánuðum næsta árs.

Fangelsisdómar í markaðsmisnotkunarmálum Landsbankans og Kaupþings

Sérstakur saksóknari hefur sótt tvö önnur markaðsmisnotkunarmál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Annars vegar var um að ræða mál Landsbankans en Sigurjón Þ. Árnason, fyrrverandi bankastjóri, var dæmdur í tólf mánaða fangelsi fyrir aðild sína að því, en þar af voru níu mánuðir skilorðsbundnir. Tveir aðrir starfsmenn bankans voru einnig dæmdir til refsingar en einn sýknaður.

Þá voru þeir Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings, og Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður bankans, dæmdir til refsingar vegna markaðsmisnotkunar í Kaupþingi fyrir hrun. Hreiðari var ekki gerð refsing umfram þann dóm sem hann hlaut í Al Thani-málinu, sem var fimm og hálft ár, en ári var bætt við refsingu Sigurðar og var samanlögð refsing hans fyrir bæði málin fimm ár. Fimm aðrir starfsmenn bankans hlutu dóma í málinu en tveir voru sýknaðir.

Báðum þessum dómum héraðsdóms var áfrýjað til Hæstaréttar sem enn á eftir að taka málin til meðferðar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×