Icelandair-svikari margsaga fyrir dómi: Gat ekki sýnt fram á nokkur samskipti við margnefndan Juri Birgir Olgeirsson skrifar 16. desember 2015 14:00 Var maðurinn sakaður um að hafa í tíu skipti frá mars til ágúst í ár, ýmist í félagi við annan óþekktan mann eða einn síns liðs, svikið út farmiða í flug hjá Icelandair, samtals að andvirði 10.138 Bandaríkjadala, eða sem nam 1,3 milljónum króna. Vísir/Valli
Héraðsdómur Reykjaness dæmdi 42 ára gamlan Letta til átta mánaða fangelsisvistar fyrir fjársvik með því að hafa með skipulegum hætti svikið út vörur og þjónustu hjá Icelandair á fimm mánaða tímabili í ár. Var maðurinn sakaður um að hafa í tíu skipti frá mars til ágúst í ár, ýmist í félagi við annan óþekktan mann eða einn síns liðs, svikið út farmiða í flug hjá Icelandair, samtals að andvirði 10.138 Bandaríkjadala, eða sem nam 1,3 milljónum króna samkvæmt miðgengi Seðlabanka Íslands á kaupdegi hverju sinni. Við greiðslu flugbókana á vef Icelandair gaf maðurinn upp í blekkingarskyni og án heimildar, greiðslukortanúmer sem tilheyrðu greiðslukortum annarra einstaklinga auk þess sem greiðandi hverrar bókunar var ranglega sagður með sama nafn og farþegi, sem í öllum tilvikum líktist nafni Lettans, stafsettu á mismunandi hátt.Margsaga í skýringum fyrir dómi Í niðurstöðu dómsins kom fram að Lettinn hefði verið margsaga í skýringum sínum fyrir dómi og hjá lögreglu. Sagði hann við lögreglu hafa keypt miðana af tveimur nafngreindum mönnum, en fyrir dómi nefndi hann aðeins mann að nafni Juri. Sagðist hann hafa hitt Juri á Tenerife og Í Þýskalandi og verið í miklum samskiptum við hann, en vissi þó ekki nein frekari deili á honum né gat hann staðfest neitt um þau samskipti. Í skýrslu lögreglu bar maðurinn hins vegar að hafa hitt umræddan Juri í fyrsta sinn í Þýskalandi áður en hann kom til Íslands þann 8. ágúst síðastliðinn. Héraðsdómur Reykjaness sagði manninn á engan hátt hafa getað sýnt fram á nokkur samskipti við margnefndan Juri. Sem skýringu á samskiptum sínum við Juri, hafði maðurinn meðal annars borið að hann hafi lítið kunnað á tölvur til þess að panta flugmiða. Héraðsdómur Reykjaness benti hins vegar á að þrátt fyrir vankunnáttu hans í tölvusamskiptum virðist maðurinn ekki hafa verið í neinum vandræðum með að komast í kynni við meintar stúlkur í gegnum Internetið, sem hann bar að hafa ætlað að hitta hér á landi. Þá benti dómurinn á að maðurinn hefði pantað greiðslukort frá Bretlandi í gegnum netið án nokkurra vandkvæða.Hlotið dóma í Lettlandi, Bretlandi og Þýskalandi Við ákvörðun á refsingu yfir manninum voru lagðar fram erlendar upplýsingar um fyrri brot hans. Samkvæmt þeim hefur hann sjö sinnum verið sakfelldur í heimalandi sínu og í flestum tilfellum fyrir háttsemi tengda svikum eða fölsun. Þá hafði hann einnig hlotið fangelsisdóm í Bretlandi fyrir að hafa í fórum sínum fölsuð skilríki og fyrir að gefa falskar upplýsingar í því skyni að tryggja sér ávinning eða valda öðrum tjóni. Einnig hafði maðurinn hlotið tvo dóma í Þýskalandi, fyrir skattsvik og auðgunarbrot. Var maðurinn dæmdur til átta mánaða fangelsisvistar en fjögurra mánaða gæsluvarðhald var dregið frá dómnum. Þá var hann dæmdur til að greiða Icelandair 993 þúsund krónur í bætur og fjögur hundruð þúsund krónur í málskostnað.
Tengdar fréttir Fingralangur fjársvikari og barþjónn í gæsluvarðhaldi fram á nýtt ár „Ferðasjúki barþjónninn“ Konstantin Deniss Fokin sneri aftur til Íslands í sumar og virðist hafa tekið upp fyrri iðju. 15. desember 2015 14:46 Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Innlent Fleiri fréttir Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Sjá meira
Fingralangur fjársvikari og barþjónn í gæsluvarðhaldi fram á nýtt ár „Ferðasjúki barþjónninn“ Konstantin Deniss Fokin sneri aftur til Íslands í sumar og virðist hafa tekið upp fyrri iðju. 15. desember 2015 14:46