Til skoðunar að loka Kvíabryggju Þorbjörn Þórðarson skrifar 16. desember 2015 18:30 Páll Winkel forstjóri Fangelsismálastofnunar.
Til greina kemur að loka fangelsinu á Kvíabryggju í þágu sparnaðar og endurskipulagningar. Þetta segir Páll Winkel fangelsismálastjóri. Hann segir að Fangelsismálastofnun vanti 80 milljóna króna viðbótarfjárveitingu svo vel megi við una í fangelsismálum. Menntun fangavarða hefur setið á hakanum vegna fjárskorts. Eins og sést á tölum yfir framlög ríkisins til Fangelsismálastofnunar á verðlagi hvers árs (sjá grafík með frétt) héldust þau svipuð fram til ársins 2013 en hafa aukist á síðustu árum. Auknar fjárveitingar skýrast aðallega af verðlagsbreytingum, launahækkunum, nýjum verkefnum og flutningi í nýtt leiguhúsnæði. Sé tekið tillit til verðlagsbreytinga varð til að mynda lækkun á framlagi ríkisins til stofnunarinnar milli áranna 2013 og 2014. Bygging fangelsis á Hólmsheiði er langt komin Í fjárlagafrumvarpi næsta árs er gert ráð fyrir tæplega 1,6 milljörðum króna í framlög til Fangelsismálastofnunar. Því til viðbótar mun ríkissjóður verja 240 milljónum króna í framkvæmdir vegna byggingar fangelsisins á Hólmsheiði en bygging þess er langt komin. Páll Winkel forstjóri stofnunarinnar segir stofnunina vanta 80 milljónir króna til viðbótar í fjárlögum næsta árs til að sinna lögbundnum verkefnum svo vel megi við una. „Við settum ákveðna neyðaráætlun í gang sem gerir ráð fyrir 80 milljónum í viðbót. Við rákum ekki fangavarðaskóla, við þurfum að hafa menntaða fangaverði. Við erum búin að skera allt niður sem hægt er að skera niður. Þetta vita allir,“ segir Páll. Hann segir til greina koma að loka fangelsinu á Kvíabryggju vegna endurskipulagningar á fjárhag Fangelsismálastofnunar og breytinga á húsnæðiskosti stofnunarinnar.Myndin er tekin í vistarverum fanga á Kvíabryggju „Við erum með tvær stórar einingar á næsta ári, Hólmsheiði og Ltila Hraun. Við erum með Sogn sem er rekið sem lítið útibú frá Litla Hrauni. Þá standa eftir fangelsið á Akureyri, sem er mjög lítið fangelsi og fangelsið á Kvíabryggju. Þannig að þegar við erum að tala um að fara vel með fjármagn þá getum við ekki leyft okkur neinn lúxus, þannig að Kvíabryggja er undir eins og allt annað.“Er þetta eitthvað sem þú ert að skoða í alvöru? „Við skoðuðum og íhuguðum að loka Kópavogsfangelsi á þessu ári og gerðum það. Ef við sjáum okkur ekki geta gert rekstraráætlun án þess að loka öðru fangelsi þá leggjum við það til, já,“ segir Páll. Hvað verður um golfvöllinn? Ljóst er að fari svo að Kvíabryggja loki og afplánunarfangar þar verði fluttir í önnur fangelsi mun það fela í sér talsverða lífskjaraskerðingu fyrir þá. Kvíabryggja er opið fangelsi og aðstaðan þar er öll betri en til dæmis á Litla Hrauni. Föngum er leyfilegt að nýta frítíma sinn til útivistar meðan bjart er, sumar sem vetur, og fara um svæði jarðarinnar í kringum fangelsið. Fangar á Kvíabryggju hafa m.a. komið sér þar upp litlum golfvelli.
Mest lesið Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Innlent Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent Fleiri fréttir Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi Sjá meira