Ísland er í þriðja sæti þegar kemur að fjarskiptum og upplýsingatækni Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 17. desember 2015 07:00 Hrafnkell V. Gíslason forstjóri Póst- og fjarskiptastofnunar. vísir/Vilhelm
Ísland er í þriðja sæti á heimsvísu í fjarskiptum og upplýsingatækni samkvæmt nýrri skýrslu Alþjóðafjarskiptasambandsins. Hrafnkell V. Gíslason, forstjóri Póst- og fjarskiptastofnunar, segir þetta gleðitíðindi. „Við getum verið mjög ánægð með þetta. Sérstaklega á svona stóru og dreifbýlu landi,“ segir Hrafnkell. Ísland hefur aldrei komist ofar en þriðja sæti á listanum en hefur vermt það sæti frá árinu 2010, þó með batnandi einkunn frá Alþjóðafjarskiptasambandinu ár frá ári. Inn í einkunnina reiknast meðal annars farsímaáskriftir og aðgangur að interneti. „Þegar aðgengi að fjarskiptaþjónustu er orðið þetta gott hjá flestum verður aðstöðumunur þeirra sem ekki hafa jafngott aðgengi hrópandi mikill. Það er staðan sem við horfum á víða í dreifbýli og strjálbýli í dag. Aðgengi að háhraðaneti er þar mjög lélegt eða ekki til staðar. Á sama tíma gengur þjóðfélagið út á að allt sé á netinu, þjónusta, fjölmiðlar og afþreying. Þeir sem ekki eru á internetinu lenda þá út undan,“ segir hann. Hrafnkell segir markaðsaðila á Íslandi hafa komið landinu á þann stað sem það er nú og haldið úti góðri þjónustu á svæðum þar sem markaðsaðstæður eru fyrir hendi. Hins vegar segir hann markaðsaðila ekki meta þær fyrir hendi í strjálbýli og þar verði stjórnvöld að koma inn í. Hrafnkell bendir á að í fjárlagafrumvarpi sem undanfarið hafi verið rætt á Alþingi sé lagt til að um 500 milljónum króna verði varið í það verkefni. „Baráttan heldur áfram þó við séum í góðri stöðu. Við viljum halda henni og ekki síst klára dæmið gagnvart þeim sem ekki njóta háhraðaþjónustu,“ segir Hrafnkell V. Gíslason.
Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Innlent Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Innlent Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Erlent Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Innlent Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Innlent Fleiri fréttir Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Sjá meira