Mannréttindalögfræðingur fær það óþvegið Jakob Bjarnar skrifar 17. desember 2015 13:58 Jakob Ingi er úthrópaður á samfélagsmiðlum fyrir umdeilda grein; kallaður karlréttindafræðingur og sagður fæddur á vitlausri öld.
Jakob Ingi Jakobsson mannréttindalögfræðingur skrifaði grein sem birtist í Fréttablaðinu í dag en þar fjallar hann meðal annars um fóstureyðingar eða þungunarrof eins og margir vilja kalla það. „Fóstureyðing er aldrei, né getur verið, einkamál konu. Enda verður barn ekki getið nema með aðkomu karlmanns. Konur verða að axla ábyrgð á eigin kynlífi alveg eins og karlmenn!“ skrifar Jakob Ingi meðal annars en grein hans hefur vakið mikla athygli; hún hefur víða fallið í grýtta jörð og verður að segja þá sögu alveg eins og er að mannréttindalögfræðingurinn fær það óþvegið á samfélagsmiðlum og á athugasemdakerfum.Karlréttindafræðingur Gísli Ásgeirsson þýðandi gerir það að tillögu sinni að breytt verði um titil Jakobs Inga, þá í karlréttindalögfræðingur í athugasemd á Vísi. Þar tjáir Þórdís Elva Þorvaldsdóttir sig einnig og hún er ekki ánægð með umrædd skrif:Þórdís Elva segir að þetta sé kvennanna eigin ákvörðun, því þetta er þeirra eigin líkami.„Til áréttingar: Konur líta ekki léttvægum augum á fóstureyðingar. Það er hvorki auðvelt né hættulaust ferli. Eins og Frederica Mathewes-Green sagði: “A woman does not want an abortion like she wants an ice cream cone, a new dress, or a Porsche; she wants an abortion like an animal caught in a trap wants to gnaw off its own leg to escape. Abortion is not a sign that women are free, but a sign that they are desperate." Einmitt þess vegna þurfa fóstureyðingar að vera löglegar og aðgengilegar fyrir konur, svo engin þeirra neyðist til að gera eitthvað hættulegt, líkt og dýr í refagildru. Og það er þeirra eigin ákvörðun, því þetta er þeirra eigin líkami. Alltaf. Svo minni ég líka á að það er 2015. Alltaf gott að hafa ártalið hugfast þegar maður skrifar greinar í blöðin.“Uppi á vitlausri öld Og, ýmsir vilja benda á að líkast til hafi Jakob Ingi lent í einhvers konar tímavél, hann sé ekki í takti við nútímann. „Sjitt! Ég held að ég hafi vaknað upp á vitlausri öld í morgun ... Og rólegan æsing með upphrópunarmerkin!“ skrifar Sif Sigmarsdóttir á sína Facebooksíðu.María Lilja hefur þetta um skrifin að segja: HAHAHAHAHAHA!Ólafur Arnarson hagfræðingur er einnig á þeirri línu: „Ja hérna, góðan daginn allan daginn! Hér er einn sem greinilega hefur ekki misst bara af 21. öldinni heldur allri þeirri 20. líka.“Og María Lilja Þrastardóttir blaðamaður hefur þetta um málið að segja: „HAHAHAHAHAHA!“ Borgarfulltrúinn Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir trúir ekki eigin augum: „Hvurslag rugl er þetta orðalag hjá manninum að segja "eigi eða deyði barnið" þetta er ekki barn þetta er fóstur. Þegar karlmenn geta farið að ganga með börn þá geta þeir tekið þessa ákvörðun en þangað til á þetta að vera ákvörðun konunnar. Svo flókið er það nú ekki og nota orðalagið að konur séu að "deyða börn" er svívirðilegt.“Loksins loksins Reyndar er einn maður sem styður viðhorf Jakobs Þórs heilshugar og heitir sá Jón Valur Jensson guðspekingur. Hann var fyrstur til að leggja orð í belg á athugsemdakerfi Vísis og hann er mjög ánægður með skrifin:Einn fárra sem er ánægður með grein Jakobs Inga, eða þorir að láta það í ljós, er Jón Valur.„Frábær, ég fullyrði: einstæð er grein þessa mannréttindalögfræðings í Fréttablaðinu í dag,“ skrifar Jón Valur og hann er hrifinn: „Með ferskri nálgun veltir hann upp staðreyndum þess, að hér er ekki um einhliða kvennamál að ræða, kemur þar víða við af mikilli þekkingu og sanngirni og bendir m.a. á fleiri valkosti en þá, sem rúmast myndu innan þeirrar áætlunar sem því miður er í sigti hjá heilbrigðisráðherranum og hans róttæka baklandi í kröfum fáeinna femínista, m.a. í stjórn Kvenréttindasambands Íslands, sem vilja að konur fái að ráða þessu einhliða. (Sjá nánar gagnrýni mína á þann málflutning hér: og í annarri grein sem þar er vísað til.) –––En svo sjaldgæf er líka málsvörn fyrir aðkomu réttindasviptra karla að þessu máli og forsjárlausra feðra að uppeldi barna sinna, að hér getur sá hópur, í ljósi þessarar einstæðu greinar Jakobs Inga, nú sagt einum rómi (eins og áður var sagt um ágætan rithöfund): LOKSINS, LOKSINS ... fær réttlætið að hljóma refjalaust!“
Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Innlent Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Innlent Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Erlent Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Innlent Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Innlent Fleiri fréttir Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Sjá meira