Skilorðsbundið fangelsi fyrir kynferðislega áreitni Jóhann Óli Eiðsson skrifar 17. desember 2015 17:44 Í Hæstarétti. vísir/stefán
Hæstiréttur staðfesti í dag dóm yfir tæplega þrítugum karlmanni sem hann hlaut í héraðsdómi í desember á síðasta ári fyrir kynferðislega áreitni og ósiðlegt athæfi. Maðurinn hafði farið óboðinn inn í svefnherbergi þar sem vinkona hans lá sofandi, lagst við hlið hennar og strokið henni meðan hann fróaði sér. Refsing hans var ákveðin sex mánaða skilorðsbundið fangelsi til þriggja ára. Atvikið átti sér stað aðfaranótt 9. mars 2013 en þá kom brotaþoli heim af djamminu ásamt vinkonu sinni. Vinkona hennar bauð hinum sakfellda að koma þangað til þeirra en hann þekkti þær báðar. Öll voru þau undir áhrifum áfengis. Þær fóru saman inn í herbergi en manninum var boðið að sofa á sófa í íbúðinni. Um nóttina vaknaði brotaþoli við að maðurinn lá á milli þeirra vinkvenna. Strauk hann henni um rass, læri og þuklaði á henni á meðan hann fróaði sér. Þá stundi hann til skiptis nöfn vinkvennanna og unnustu sinnar. „Ég reyni meira og meira og reyni að fá hann til að hætta og hann hættir ekkert fyrr en hún vaknar og hún er ekkert að gera sér grein fyrir hvað er að gerast strax, hún bara horfir á okkur ... en hún sér að ég er svona skrýtin í andlitinu og byrja að öskra á hana og segi við hana að hann sé bara að káfa á mér og eitthvað og þá kýlir eða svona gefur hún honum olnbogaskot í bringuna og togar í hárið á honum og svona tekur hann út úr rúminu og hendir honum fram.“ Svona skýrði brotaþoli frá málinu við skýrslutöku. Maðurinn neitaði sök og sagði að hann hefði ekki hugmynd hví hann væri sakaður um brotið. Í dómi héraðsdóms, sem staðfestur var af Hæstarétti, segir að tilkynnt hafi verið um brotið samdægur og lítið ósamræmi hefði verið í framburði vinkvennanna. Var það mat hans að ekkert hefði komið fram í málinu sem rýrt hefði vitnisburð þeirra. Auk refsingarinnar var maðurinn dæmdur til að greiða brotaþola 250.000 krónur auk alls sakarkostnaðar en hann nemur rúmlega milljón krónum.
Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Innlent Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Fleiri fréttir „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Sjá meira