Matur

Hrefna Sætran: Smáréttir í hátíðarbúningi

Ólöf Skaftadóttir skrifar
Hrefna Sætran kokkur töfrar fram dýrindis mat og gefur uppskriftirnar hér fyrir neðan.
Hrefna Sætran kokkur töfrar fram dýrindis mat og gefur uppskriftirnar hér fyrir neðan. Vísir/Ernir

Hrefna Rósa Sætran, kokkur og veitingahúsaeigandi, deilir með lesendum uppskriftum að uppáhaldssmáréttunum sínum fyrir jólin.

Jólasíld Hrefnu SætranMynd/Björn Árnason

Kókos-anis síld með appelsínu smjöri

Síldin:

200 g marineruð síld

250 ml kókosmjólk

2 stk anis stjörnur

2 stk negulnaglar

1 kanil stöng



Aðferð:

Sigtið síldina og þerrið hana. Hitið upp á kókosmjólkinni með kryddunum út í. Kælið svo kókosmjólkina og bætið síldinni út í. Marinerið síldina í nýja kókosleginum. Því lengur sem þið marinerið hana þeim mun meira bragð verður af henni.

Appelsínusmjör:

200 g ósaltað smjör

1 dl súrmjólk

1 stk appelsína

1 hvítlauksrif

Gott sjávarsalt

Aðferð:

Leyfið smjörinu að ná stofuhita. Setjið það í hrærivél og þeytið það upp með súrmjólkinni. Rífið börkinn af appelsínunni fínt og hvítlauksrifið líka. Bætið því út í smjörið og blandið vel saman. Kryddið svo með salti.

„Rúgbrauð fer afskaplega vel með þessari síld,“ segir Hrefna.

Létt grafin bleikjaMynd/Björn Árnason

Létt grafin ofnbökuð bleikja með blómkáls og grænubauna mauki

Bleikjan:

200 g fínt salt

100 g púðursykur

8 bleikjuflök

Aðferð:

Blandið saman salti og sykri. Beinhreinsið bleikjuflökin. Stráið 1/3 af saltmarineringunni í fat, leggið roðið niður á saltið og stráið svo afgangnum yfir. Grafið bleikjuna í 30 mínútur. Skolið flökin og þerrið þau og setjið þau í ískápinn þar til þau verða alveg köld aftur. Þetta gerum við til að fiskurinn ofeldist ekki þegar við eldum hann svo í ofninum á eftir. Leggið flökin svo á bökunarpappír í ofnskúffu með roðhliðina upp. Bakið við 220°c í 8 mínutur. Þá ætti roðið að renna auðveldlega af fiskinum.

Blómkáls grænubaunamauk:

300 g grænar baunir (grænar frostnar baunir, ekki þessar í dós)

200 g blómkál

400 ml vatn

300 ml rjómi

Aðferð:

Blandið saman vatninu og rjómanum í potti. Fáið upp suðu og bætði blómkálinu út í og sjóðið í 10 mínútur. Bætið baununum út í og sjóðið áfram í 5 mínútur. Sigtið grænmetið frá rjómablöndunni og maukið í blandara. Bætið smá af rjómavatninu út í og maukið þar til flauelismjúkt. Kryddið með salti og pipar.

Gæsabringa með jólarauðkáliMynd/Björn Árnason

Gæsabringa með jólarauðkáli

Gæsin:

4 stk gæsabringur

Olía til að steikja upp úr

Salt og pipar

4 msk smjör

2 greinar timijan



Aðferð:

Kryddið gæsabringurnar með salti og pipar. Hitið pönnu við miðlungs hita og hellið olíu á hana. Steikið gæsabringurnar í 3 mínútur á annari hliðinni, snúið þeim svo við og steikið áfram í 3 mínútur.

Slökkvið undir pönnunni, bætið smjörinu og timijan greinunum út á og baðið bringurnar upp úr smjörinu. Gott er að nota skeið til að ausa smjörinu yfir bringurnar og snúa þeim nokkrum sinnum. Leyfið bringunum að hvíla vel áður en þið skerið þær í þunnar sneiðar.

Jólarauðkál:

2 rauðkálshausar

200 g púðursykur

100 ml rauðvínsedik

1 kanilstöng

1 stjörnuanis

3 negulnaglar

500 ml trönuberjasafi

1 líter maltöl

Aðferð:

Skerið rauðkálið fínt niður. Setjið það í pott ásamt öllu hráefninu og sjóðið við vægan hita í svona klukkutíma. Kælið eða borðið heitt.  

Reykt andabringa.Mynd/Björn Árnason

Reykt andabringa með remúlaði og pikkluðum rauðlauk

„Þetta er sniðug útfærsla ef þið ætlið að borða reykt kjöt í forrétt. Hangikjöt, reykta andarbringu, gröfnu kjöti eða eitthvað sniðugt sem er hægt að kaupa tilbúið útí búð fyrir jólin. Um að gera notfæra sér allt það úrval sem til er í búðunum og leggja meira í aðalréttinn þá í staðinn," segir Hrefna.

2 stk reykt andarbringa, skorin í þunnar sneiðar.

Remúlaði:

100 ml mæjónes

2 stk litlar súrar gúrkur

1 msk dijon sinnep

börkur (fínt rifinn) og safi úr 1/2 sítrónu

2 msk hunang

1 msk capers

Aðferð:

Blandið öllu saman í skál og smakkið til með hunangi. Það er dálítið smekksatriði hversu sætt fólk vill hafa þetta og fer líka eftir kjötinu sem á að bera þetta fram með.

Pikklaður rauðlaukur:

2 skt rauðlaukur

40 g sykur

40 g eplaedik

Aðferð:

Skrælið laukinn og skerið hann í bita. Hitið sykurinn og eplaedikið saman í potti og bætið lauknum út í. Þegar laukurinn er orðinn bleikur (sirka 2 mínútur) takið hann þá og kælið hann inn í ísskáp. Gott er að bera þetta fram kalt með reyktu og gröfnu kjöti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×