Segir fólk mega skammast sín fyrir árásirnar á Vigdísi Jakob Bjarnar skrifar 1. desember 2015 08:59 Flokksystkinin Karl og Vigdís standa saman. Karl segir að þeir sem ráðist nú gegn Vigdísi megi skammast sín, Vigdís er heiðarleg sem er meira en segja má um marga aðra. visir/ernir
Karl Garðarsson, þingmaður Framsóknarflokksins, hundskammar þá sem hafa gagnrýnt Vigdísi Hauksdóttur formann fjárlaganefndar. Karl setti fram ádrepu á Facebooksíðu sinni þar sem hann segir flokksystur sína heiðarlegan stjórnmálamann, annað en segja má um suma. Vísir greindi frá því í gær að öll spjót standi nú á Vigdísi en svo virðist sem einhver stífla hafi brostið þegar hún sagði að hún mætti sæta andlegu ofbeldi af hálfu Páls Matthíassonar forstjóra Landsspítalans, sem væri stöðugt með þá kröfugerð á hendur fjárlaganefnd að fá aukið fjármagn til spítalans. Meðal þeirra sem gagnrýnt hafa Vigdísi er fyrrverandi þingmaður Framsóknarflokksins, Helga Sigrún Harðardóttir, sem segir „freistandi að reyna að sjúkdómsgreina þessa konu og reyna að finna merkimiða á hrokann, sjálfhverfuna, frekjuna og þetta fárveika egó.“ Helga Sigrún setur fram þá kröfu að Framsóknarflokkurinn finni Vigdísi annan vettvang. „Ýmsir hafa notað síðasta sólarhring í að pönkast sem mest á Vigdísi Hauksdóttur. Húrrahrópin hafa verið háværust þegar spörkin hafa verið sem föstust. Þannig hefur Vigdís verið hædd, hún sökuð um óþolandi framgöngu, auk þess sem talað er um persónulegt skítkast hennar, að það þurfi að sjúkdómsgreina hana o.sv.frv. Fyrrverandi ráðherra vill ráða sálfræðing í áfallahjálp. Fjölmiðlarýnir talar um óttastjórnun,“ skrifar Karl á Facebookvegg sinn. Karl segir að Vigdís Hauksdóttir sé langt því frá að vera yfir gagnrýni hafinn og sjálfur sé hann oft ósammála henni. „Vigdís Hauksdóttir er hins vegar heiðarlegur stjórnmálamaður og hún er trú sinni sannfæringu. Það væri óskandi að hægt væri að segja það sama um marga þá sem hafa hæst í umræðunni. Fólk sem hikar ekki við að ráðast að æru annarra. Fólk sem telur allt leyfilegt þegar Vigdís Hauksdóttir á í hlut. Þetta fólk á að skammast sín. En það eru litlar líkur á að það taki skömmina til sín.“Ýmsir hafa notað síðasta sólarhring í að pönkast sem mest á Vigdísi Hauksdóttur. Húrrahrópin hafa verið háværust þegar...Posted by Karl Garðarsson on 1. desember 2015
Mest lesið „Trúið ekki þessari áróðursvél“ Erlent Leitar afkomenda Ungverjanna sem komu til Íslands fyrir sjötíu árum Innlent Þvag, saur og uppköst í klefum Innlent „Svartir sauðir misnoti réttindin“ og Reykjavík ræðst í aðgerðir Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Fulltrúi ICE skaut konu til bana í Minneapolis Erlent Íslenskur fjárfestir í óvenjulegri skilnaðardeilu í Bretlandi Innlent Allra augu á Íslandi og Atlantshafinu Erlent Án leyfis en titlar sig enn sem lækni Innlent Mikill viðbúnaður á Kringlumýrarbraut Innlent Fleiri fréttir Þvag, saur og uppköst í klefum Leitar afkomenda Ungverjanna sem komu til Íslands fyrir sjötíu árum Símabann skilað góðum árangri þó sumir stelist í símann „Svartir sauðir misnoti réttindin“ og Reykjavík ræðst í aðgerðir Hildur hlýtur Íslensku bjartsýnisverðlaunin Rússneskt skip í íslenskri lögsögu og nemendur eiga erfitt með símabann Kleip og sparkaði í fjölda lögreglumanna og látin dúsa í einangrun mánuðum saman Árekstur á Álftanesvegi Tvennu vísað úr landi Munu skoða hvort tilefni sé til að hægja á inntöku nýrra barna Útlendingastofnun tilkynnir starfsmanninn til lögreglu Hægt að skíða í Ártúnsbrekku síðar í dag Börnin verði heima einn og hálfan dag í viku Mikill áhugi á fyrsta sæti hjá Viðreisn Stefán vill verða varaformaður Vara við norðaustan hríð á sunnanverðu landinu Jónas Már vill leiða Samfylkingu í Kópavogi Tuddi hlaut dóm fyrir að níðast á nautgripum sínum Björg blandar sér í oddvitaslaginn í borginni Ekkert nema hégómi hjá Trump að vilja setja bandaríska fánann á Grænland Eldur kveiktur í lyftu Segir skynsamlegt að anda með nefinu varðandi Grænland Sami oddviti í fyrsta sinn í tæp þrjátíu ár Skautasvell á Stokkseyri slær í gegn Vill lækka veikindahlutfall opinberra starfsmanna Týnda göngufólkið reyndist vera í Reykjavík Engir símar á neyðarfundi og ráðherrar bregðast við skaupinu Hildur Björnsdóttir óskoraður oddviti í Reykjavík Viðreisn býður fram á Akureyri í fyrsta sinn Án leyfis en titlar sig enn sem lækni Sjá meira