Vistaður á stofnun eftir kynferðisbrot gegn fimm og sjö ára drengjum Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 2. desember 2015 17:54 Málið var rekið fyrir Héraðsdómi Norðurlands eystra á Akureyri. Vísir/Pjetur
Vista þarf þroskaskertan pilt á viðeigandi stofnun þar sem hann hefur mjög óeðlilegar hvatir til barna og dæmi eru um að hann hafi brotið kynferðislega gegn þeim. Pilturinn var sýknaður af ákæru ríkissaksóknara um kynferðisbrot gegn fimm ára og sjö ára drengjum þar sem hann er metinn óhæfur til að hafa stjórn á gjörðum sínum. Dómur féll í Héraðsdómi Norðurlands eystra þann 24. nóvember síðastliðinn. Fyrra brotið átti sér stað sumarið 2014 en hið síðara síðastliðið vor. Í báðum tilvikum fór hann með drengina inn á salerni, læsti og braut á drengjunum. Maðurinn játaði brot sín fyrir dómi. Í skýrslu geðlæknis kemur fram að pilturinn hafi átt við hegðunartruflanir að stríða frá unga aldri og eigi erfitt með að stjórna hegðun sinni. Hann taki skapofsaköst og hvatir hans til barna séu óeðlilegar. Greindarvísitala hans mældist 42 árið 2013 sem er við neðstu mörk kvarða og flokkast sem miðlungsgreindarskerðing. Frá 1. október 2014 hafi hann hlítt sérstökum öryggisúrræðum á vegum barnaverndarnefndar. Pilturinn er að því er fram kemur í dómnum í stöðugri gæslu en árásargirnd hans hafi ekki minnkað. Veggir í íbúð hans séu margbrotnir og hvatir til barna séu mjög óeðlilegar. Hann hafi hins vegar ekki verið fær um að ræða þær við geðlækni. Réttarsálfræðingur sem skoðað hefur stöðu piltsins segir að hann geti reynst öðrum hættulegur og þá sérstaklega ungum börnum. Hann þurfi aðhald og gæslu. Dómurinn vísaði til 15. greinar almennra hegningarlaga sem segja að mönnum sem geti ekki stjórnað gerðum sínum af sökum geðveiki, vanþroska og fleira skuli ekki refsað. Var hann því sýknaður af refsikröfu. Dómurinn taldi hins vegar annað óhjákvæmilegt en að vista hann á viðeigandi hæli eins og segir í dómnum.
Mest lesið „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Erlent Tortímir gervigreindin mannkyninu? Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Innlent Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Innlent Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Innlent Fleiri fréttir Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Tortímir gervigreindin mannkyninu? „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðustól Alþingis Bein útsending: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við „Við erum ekki að byrja á núlli“ Fimm ára dómur Norberts staðfestur Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Endurskoða samning SÁÁ Sjá meira