Heilsueflandi samfélag byggt upp í Breiðholti Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 3. desember 2015 00:00 Þórdís Lilja Gísladóttir, verkefnisstjóri verkefnisins Heilsueflandi Breiðholt, segir verkefnið ná til barna, unglinga, fullorðinna og aldraðra. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Vinnu um heilsueflandi samfélag hefur verið hrundið af stað í Breiðholti og nær verkefnið til allra aldurshópa, barna, unglinga, fullorðinna og aldraðra. Aðaláhersla í verkefninu er á fjóra þætti, næringu, hreyfingu, líðan og lífsstíl. Um er að ræða útfærslu á forvarnastefnu Reykjavíkurborgar og stefnu um heilsueflingu sem byggir á samningi borgarinnar og landlæknis um samstarf. „Leitast hefur verið við að ná til allra hagsmunahópa til að greina stöðu hverfisins og hef ég leitt vinnu við aðgerðaáætlanir leik-, grunn- og framhaldsskóla, félagasamtaka, félagsmiðstöðva, frístundaheimila, heimila fatlaðs fólks og félagsstarfs eldri borgara,“ segir Þórdís Lilja Gísladóttir verkefnisstjóri. Hún segir markmiðið að börnin fái alltaf sömu skilaboðin en áherslurnar verði mismunandi eftir því um hvaða stofnun er að ræða. „Segjum sem svo að skóli velji þáttinn næringu. Þá er hugað að því hvort mötuneyti uppfylli ákveðinn staðal og spurt hvort ástæða sé til að taka á nestismálum nemenda. Hjá íþróttafélögum er mest áhersla lögð á hreyfingu en þau skoða þá til dæmis hvernig nesti börnin koma með í keppnisferðir.“ Þórdís nefnir einnig að hver og einn skóli búi til sína aðgerðaáætlun. „Í einum skóla gæti til dæmis verið lögð áhersla á að börnin fái hafragraut í skólanum á morgnana. Það þykir kannski ekki jafn mikilvægt í öðrum skólum í hverfinu.“ Verið er að reyna að hagnýta fræðin, eins og Þórdís orðar það. „Við vitum að kvíði og þunglyndi minnkar þegar heilsan batnar. Það er hægt að leysa mörg vandamál ef við erum sammála um aðferðirnar til þess.“ Að sögn Þórdísar styðja fjölmargar rannsóknir þá nálgun að heilsueflandi umhverfi bæti líðan nemenda, stuðli að bættum námsárangri og dragi úr brottfalli í skóla. Í félagsstarfi aldraðra sé mikilvægt að leggja áherslu á hreyfingu til að auka lífsgæði þeirra. Þjónustumiðstöðin í Breiðholti vinnur þverfaglega með hinum ýmsu stofnunum í öllum viðfangsefnum verkefnisins. „Starfið beinist að því að minnka áhættuhegðun barna og ungmenna, skimun og íhlutun.“
Mest lesið Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent „Tíminn er á þrotum“ Erlent Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Innlent Hrákinn endaði í andliti og auga Innlent Nauðlenti vegna sprengjuhótunar Erlent Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Erlent Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife Innlent Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Fleiri fréttir Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Sjá meira