Lyf reynist hættulegt fólki í geislameðferð Óli Kristján Ármannsson skrifar 4. desember 2015 07:00 Fólk leggur ýmislegt á sig til að sóla sig, en sólböðum fylgir aukin hætta á húðkrabbameini. Lyfi við sortuæxlum geta fylgt alvarlegar aukaverkanir. vísir/EPA
Komið hefur í ljós að eituráhrif geislameðferðar geta magnast taki sjúklingar inn lyfið Zelboraf, sem notað er við sortuæxlum sem ekki er hægt að fjarlægja með skurðaðgerð. Dæmi eru um það erlendis að sjúklingar hafi látið lífið vegna þessa. Lyfjastofnun hefur birt bréf sem send voru til heilbrigðisstarfsmanna í september og október þar sem varað er við þessum áður óþekktu aukaverkunum lyfsins. Þar kemur fram að tilkynnt hafi verið um alvarlega áverka tengda geislun, sem í þremur tilvikum hafi leitt til dauða, hjá sjúklingum sem ýmist fengu geislameðferð fyrir, á meðan eða á eftir að meðferð með Zelboraf-lyfinu lauk. Hjá átta sjúklingum sem hófu töku lyfsins eftir að geislameðferð var lokið eru dæmi um bráðar bólgur á þeim svæðum sem áður höfðu verið geisluð, fimm í húð, tvö í lungum og eitt í þvagblöðru. Húðviðbrögðin komu ýmist fram sem hörundsroði, siggmein, exem, blöðrur eða sár.Jakob Jóhannsson, yfirlæknirÞá voru tólf tilvik um mögnun geislunaráhrifa sem sáust á alvarlegri staðbundnum geislunaráverkum en búast mátti við. „Af þessum tólf tilvikum komu níu fram í húð, þrjú í vélinda, eitt í lifur og eitt í endaþarmi,“ segir í bréfi framleiðanda lyfsins, Roche a/s. Þrjú tilvik leiddu til dauða. Einn fékk geislunardrep í lifur tíu vikum eftir geislameðferð, en hinir tveir sjúklingarnir fengu geislunarbólgu í vélinda. Jakob Jóhannsson, yfirlæknir á lyflækningasviði Landspítalans sem er yfir geislameðferð á sjúkrahúsinu, segir heilbrigðisstarfsfólk meðvitað um hættuna eftir tilkynningu lyfjafyrirtækisins. Þess verði nú gætt að fólk hætti notkun lyfsins á meðan geislameðferð standi. „En þetta eru nýjar upplýsingar fyrir okkur líka,“ segir hann. Ekki sé vitað til þess að aukaverkanir sem þessar hafi komið upp hér á landi, en það hafi heldur ekki verið kannað sérstaklega. Fremur fátítt sé hins vegar geislameðferð sé beitt hjá fólki með sortuæxli. „En þetta sýnir hversu hrikalegar aukaverkanir geta orðið og líka að þótt fram komi ný lyf sem virðast virka vel þá geta þau líka haft mjög alvarlegar aukaverkanir,“ segir hann. Tilkynning Roche sé því áminning til heilbrigðisstarfsfólks um þá gát sem hafa þurfi á. „Ný lyf geta líka haft alvarlegar aukaverkanir og sérstaklega þegar verið er að blanda saman tveimur aðferðum.“
Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Fleiri fréttir „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Sjá meira