Hárrétt viðbrögð starfsmanna þegar baneitruð saltsýra lak úr tanki Heimir Már Pétursson skrifar 9. desember 2015 19:30
Hárrétt viðbrögð starfsmanna Olís komu í veg fyrir slys þegar baneitruð saltsýra lak úr tanki á athafnasvæði fyrirtækisins við Héðinsgötu í Reykjavík í dag. Töluverðan tíma tók að hreinsa efnið upp. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hafði mikinn viðbúnað við Héðinsgötu enda ekkert grín þegar saltsýra lekur út. „Þetta er mjög hættulegt efni í innöndun. Þetta er sterk sýra, 36 prósent um það bil,“ sagði Guðmundur Halldórsson varðstjóri sem stjórnaði aðgerðum á vettvangi. Bílstjóri frá Eimskipum var nýkominn með gáminn að lagerhúsnæði Olís við Héðinsgötu þegar lekinn uppgötvaðist. „Sennilega hefur verið byrjað að leka eitthvað áður, við vitum það ekki. Við erum að reyna að grennslast fyrir um það núna. Bílstjórinn kvartaði strax og gámurinn kom hingað um að það læki eitthvað. Hann fann til í öndunarfærum og þess vegna erum við að reyna að finna hann núna,“ sagði Guðmundur. Bílstjórinn kenndi sér hins vegar ekki alvarlegs meins en fór á sjúkrahús til skoðunar í öryggisskyni. Tveir starfsmenn Olís sem opnuðu síðan gáminn brugðust hárrétt við aðstæðum. „Þeir voru með öndunargrímur og komnir í galla til að vera við öllu búnir. Mjög flott hjá þeim, mjög flott,“ segir Guðmundur.Þúsund lítrar af saltsýru voru í tanknum sem lak í gámnum „Það var tæmt úr honum allt sem hægt var að tæma. Svo tókum við kerið út og settum það ofan á opið ker svo hægt væri að tæma úr því. Það er búið núna og við erum að reyna að núllstilla efnið á svæðinu til að gera það óskaðlegt,“ sagði Guðmundur. Það hreinsunarstarf tók nokkurn mannafla í eiturefnabúningum nokkrar klukkustundir. En Guðmundur segir saltsýru bæði skaðlega við innöndun og snertingu og því mikilvægt að sýran færi ekki óþynnt í jarðveginn og niðurföll. „Þetta hefur náttúrlega líka áhrif á lífríkið þar sem það kemur út í sjó á meðan ekki er búið að núlla það niður,“ sagði Guðmundur Halldórsson.
Tengdar fréttir Búið að ná tökum á ástandinu: Vinna að því að gera efnið óskaðlegt Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað að húsnæði Olís við Héðinsgötu um hádegisbil vegna eiturefnaleka. 9. desember 2015 14:13 Eiturefnakafari slökkviliðs reynir að loka fyrir saltsýruleka við Héðinsgötu Mikill viðbúnaður á staðnum og búið að loka fyrir umferð um götuna. 9. desember 2015 12:37 Mest lesið Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Erlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Innlent Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Innlent Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Innlent Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Erlent Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Innlent Fleiri fréttir Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Sjá meira
Búið að ná tökum á ástandinu: Vinna að því að gera efnið óskaðlegt Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað að húsnæði Olís við Héðinsgötu um hádegisbil vegna eiturefnaleka. 9. desember 2015 14:13
Eiturefnakafari slökkviliðs reynir að loka fyrir saltsýruleka við Héðinsgötu Mikill viðbúnaður á staðnum og búið að loka fyrir umferð um götuna. 9. desember 2015 12:37