Fólksflóttinn að verða meiri en uppúr krísunni 2008 Jakob Bjarnar skrifar 30. nóvember 2015 15:18 Gylfi Magnússon: Brottflutningur íslenskra ríkisborgara í ár stefnir í að verða meiri en í krísunni 2008 til 2012. visir/valli
Landflótti stefnir í að verða meiri en var í krísunni 2008 til 2012. Þetta segir Gylfi Magnússon dósent við Háskólann og fyrrverandi efnahags- og viðskiptaráðherra. Gylfi furðar sig á framsetningu Hagstofunnar á sínum eigin tölum, því þetta er nákvæmlega það sem lesa má úr þeim. En ekki, líkt og fyrirsögnin segir til um: „Engar marktækar breytiningar á flutningsjöfnuði fyrstu þrjá ársfjórðunga 2015“. Jónas Kristjánsson fyrrverandi ritstjóri er einn þeirra sem hefur einnig efast um þessa niðurstöðu. „Þetta er stórfurðuleg „leiðrétting“ og eiginlega ekki hægt að skilja hvers vegna Hagstofan lætur hafa sig út í að senda svona nokkuð frá sér - því að hennar eigin tölur tala skýru máli,“ segir Gylfi á Facebook-síðu sinni.Þremenningarnir hafa enga ástæðu til að fagna tölum frá Hagstofunni, nema síður sé, að sögn Gylfa.Gylfi tengir við frétt Vísis þar sem segir af því að þeir Jóhannes Þór Skúlason, aðstoðarmaður Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra og Sigurður Már Jónsson, upplýsingafulltrúi ríkisstjórnarinnar, hafi fagnað nýjum tölum frá Hagstofunni, en af þeim mátti ráða að landflótti væri ekki meiri en verið hefur. Nokkur umræða hefur verið um þetta atriði að undanförnu. En, þetta segir Gylfi að megi heita sérkennileg leiðrétting: „Frá 1961 hafa brottfluttir með íslenskt ríkisfang verið að meðaltali 0,18% af fólksfjölda á hverju ári. Árið 2013 var hlutfallið komið niður í 0,01% en hefur síðan farið ört hækkandi. Í fyrra var það 0,23%, þ.e. meira en í meðalári og miðað við fyrstu þrjá ársfjórðunga þessa árs verður hlutfallið 0,46% í ár - sem er tala sem áður hefur yfirleitt bara sést í efnahagskreppum. Brottflutningur íslenskra ríkisborgara í ár stefnir í að verða meiri en í krísunni 2008 til 2012.“
Mest lesið Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ Innlent Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Innlent „Botninum hefur verið náð“ Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Innlent Boða allt að 1.400 íbúðir á lóðum ríkisins og í húsum þess Innlent Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot Innlent Krefjast aðgerða: Nemendurnir þurfi að fara um einn hættulegasta veg landsins Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent Fleiri fréttir Meirihluti oddvita í glænýju hlutverki Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Lögreglan á Austurlandi kom að handtöku fimmtíu Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ „Botninum hefur verið náð“ Segja borgaryfirvöld hafa brugðist íbúum algjörlega Húsnæðispakki 2 kynntur og ófremdarástand hjá Herjólfi Boða allt að 1.400 íbúðir á lóðum ríkisins og í húsum þess „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Bein útsending: Kynna húsnæðispakka 2 Grunar sterklega að hinn látni sé ferðamaðurinn sem leitað var að Krefjast aðgerða: Nemendurnir þurfi að fara um einn hættulegasta veg landsins Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Bein útsending: Húsnæðismál í aðdraganda kosninga Sumarbúðir fatlaðra barna í húsi sem sé úr sér gengið Vongóður um að fundur með Apple skili árangri Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Sjá meira