Götusmiðjukonur gera unga í vanda sjálfbæra Sæunn Gísladóttir skrifar 23. nóvember 2015 07:00 Lýðheilsusetrið Ljósbrot býður ungur fólki sem glímir við margs konar vanda náms- og starfsráðgjöf. Fréttablaðið/Vilhelm
Lýðheilsusetrið Ljósbrot er nýtt fyrirtæki sem býður ungu fólki á aldrinum 18 til 25 ára dagsmeðferð eða endurhæfingu. Prógrammið byggir á HOLOS-kerfinu sem lítur til manneskjunnar í heild sinni. Mikill áhugi er á því að sögn Elísabetar Gísladóttur, framkvæmdastjóra Lýðheilsusetursins, bæði af hálfu ungs fólks sem vantar aðstoð og fagfólks sem vill hjálpa. Elísabet stofnaði Lýðheilsusetrið ásamt Ölmu Rut Lindudóttur og Kolbrúnu Ingibergsdóttur, allar höfðu þær unnið í Götusmiðjunni. Hugmyndin að prógramminu spratt upp þegar þeim varð ljóst að ekkert tæki við krökkum að vímuefnameðferð lokinni. „Þau eru full af von og langar að takast á við lífið. Oft á tíðum eru þetta krakkar sem eru af annarri og þriðju kynslóð svokallaðra „kerfisfræðinga“, sem þekkja ekki mikið annað heldur en að þurfa á félagshjálp að halda,“ segir Elísabet. Markmiðið með prógramminu er að brjóta vítahringinn. Lýðheilsusetrið er til húsa í Síðumúla og býður upp á þrjár átta vikna lotur sem eru miskrefjandi. „Við sækjum þau á morgnana, og þau fara í prógramm þar sem þau fá bæði sálgæslu, áfallahjálp og meðferð við fíkn. Síðan styðjum við þau með áherslu á næringu, hreyfingu, líðan og lífsstíl sem fylgir lýðheilsulegu markmiði,“ segir Elísabet. Þátttakendum er meðal annars boðið upp á fjármálalæsi, líkamsrækt, listþerapíu, og náms- og starfsráðgjöf sem metur áhugasvið þeirra. „Það er markmið okkar að þau verði sjálfbær eftir að þau koma frá okkur,“ segir Elísabet. Hún bætir við að þátttakendur hafi áhrif á að móta prógrammið. „Það eru margir sem koma að þessum pakka til að gera hann heilan og hann verður alltaf í þróun til að mæta nýjum kröfum.“Elísabet Gísladóttir, framkvæmdastjóri Lýðheilsusetursins Ljósbrots.Þjónustan er ekki einungis í boði fyrir ungt fólk með vímuefnavanda, heldur einnig fyrir krakka sem hafa til dæmis dottið út úr framhaldsskóla. „Þjónustan er formlega að fara af stað um þessar mundir, en nú þegar eru fimm einstaklingar á fjórðu viku í lotunni,“ segir Elísabet. Yfir þrjátíu sjálfboðaliðar, meðal annars læknar, áfengisfræðingar og félagsráðgjafar koma að starfseminni. Lýðheilsusetrið er fjármagnað af styrkjum frá einstaklingum og fyrirtækjum. Næsta skref er að kynna starfsemina fyrir sveitarfélögum og ríkinu og leita til samninga við þau.
Mest lesið Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Innlent Sneri sér við, greip í spaðann á Kristrúnu og gekk út Innlent Skemmdarvargar máluðu yfir regnbogafánann Innlent „Líkist meira fána Grænhöfðaeyja heldur en þeim íslenska“ Innlent Lentu í slysi á flugbraut í Kirgistan: „Börn farin að gráta og fullorðnir farnir að öskra“ Innlent Sníkjudýrsaðferðin komin til Íslands: Hvers vegna var efnunum komið fyrir í sjókistu? Innlent Kominn með nóg af áfengisauglýsingum áhrifavalda Innlent Fær mál vegna sáðláts í andlit ekki tekið upp á ný Innlent Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán Erlent Lögreglan leitar þessara manna Innlent Fleiri fréttir Ríkisútvarpið braut ekki gegn siðareglum Trump, hóteldeilur og VestFest í kvöldfréttum Evrópusambandið sé verkfæri til að ná stöðugleika Stjórnandi drónans taldi sér ógnað og byssumaðurinn dæmdur Aukin framlög til varnarmála og öflugur stuðningur við Úkraínu á leiðtogafundi NATO Talið að tveir hafi staðið að meintum hatursglæp Gæsluvarðhald framlengt í Straumsvíkurmálinu Lögreglan leitar þessara manna Ísland skari fram úr ESB á flestum mælikvörðum Rannsaka málið sem hatursglæp Sneri sér við, greip í spaðann á Kristrúnu og gekk út Eldsvoði á Siglufirði nam þriðjungi bættra tjóna Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Fara áfram fram á varðhald yfir öllum níu Fær mál vegna sáðláts í andlit ekki tekið upp á ný Raforkueftirlitið fylgist með að lægri raforkukostnaður skili sér til neytenda Spenna á ráðstefnu NATO, raforkukostnaður og biskup um regnbogafánann „Líkist meira fána Grænhöfðaeyja heldur en þeim íslenska“ Lokuð akrein á Suðurlandsvegi og kvikmyndatökur á Krýsuvíkurleið Ummæli Trump um Grænland þurfi ekki að koma á óvart Skemmdarvargar máluðu yfir regnbogafánann Bjóða 250 þúsund krónur fyrir staðsetningu hvalveiðiskipanna Sníkjudýrsaðferðin komin til Íslands: Hvers vegna var efnunum komið fyrir í sjókistu? Hættuástand skapist eftir fráhvarf 3G „Hugsið ykkur hvað þetta er nöturleg afmælisgjöf“ Hiti gæti náð tuttugu og fimm stigum um helgina Bruninn á Stuðlum kominn til ákærusviðs og tíu með réttarstöðu sakbornings Umferð eykst milli ára Handtekinn eftir röð innbrota Lentu í slysi á flugbraut í Kirgistan: „Börn farin að gráta og fullorðnir farnir að öskra“ Sjá meira
Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán Erlent
Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán Erlent