Viðskipti innlent

102 milljóna króna gjaldþrot

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Þú Blásól var í eigu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar samkvæmt ársreikningi.
Þú Blásól var í eigu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar samkvæmt ársreikningi. mynd/silja magg
Skiptum er lokið á félaginu Þú Blásól. Félagið, sem var í eigu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, var tekið til gjaldþrotaskipta með úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur í maí. Lýstar kröfur í búið námu rúmum 102 milljónum króna en engar eignir fundust í búinu. Skiptum lauk 17. október.

Ársreikningi félagsins var síðast skilað inn árið 2007, en samkvæmt honum var eini eigandi félagsins Jón Ásgeir Jóhannesson. Talsvert var rætt um félagið snemma árs árið 2010 þegar skiptastjóri Fons, sem var áður eignarhaldsfélag Pálma Haraldssonar, vildi láta rifta ellefu samningum sem höfðu verið gerðir upp á samtals níu milljarða króna.

Þar á meðal var greiðsla upp á milljarð sem var lögð inn á reikning Jóns Ásgeirs Jóhannessonar. Síðar sendi Pálmi frá sér yfirlýsingu þess eðlis að um fjárfestingarsamning hefði verið að ræða sem Fons gerði við Þú Blásól.

Þessi umrædda færsla er á meðal ákæruefna í Aurum-málinu svokallaða, sem Hæstiréttur dæmdi á dögunum að skyldi taka aftur til efnislegrar meðferðar í Héraðsdómi Reykjavíkur. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×