Borgin vill friða gömul hús á stjórnarráðsreit Atli Ísleifsson skrifar 26. nóvember 2015 17:20 Reykjavíkurborg vill að þrjú eldri hús á stjórnarráðsreitnum verði friðuð og fái áfram að standa. Vísir/Pjetur
Reykjavíkurborg vill að þrjú eldri hús á stjórnarráðsreitnum verði friðuð og fái áfram að standa. Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkurborgar, hefur sent Stefáni Thors, nýráðnum húsameistara ríkisins, bréf um uppbyggingu á stjórnarráðsreitnum. Húsin sem um ræðir eru Lindargata 3, hús Hæstaréttar sem hannað er af Guðjóni Samúelssyni, Lindargata 7, hús Jóns Þorsteinssonar sem hannað var af Einari Sveinssyni og friðað árið 2011 og Sölvhólsgata 13 sem hannað var af Einari Sveinssyni.Í frétt á vef Reykjavíkurborgar segir að bréfið hafi verið lagt fram á fundi borgarráðs í morgun og sé ítrekun á erindi borgarstjóra til forsætisráðsherra sem dagsett er 12. febrúar 2014. Bréfinu hefur enn ekki verið svarað. „Í erindi borgarstjóra til forsætisráðherra var vakin athygli á því að borgarráð hafi falið umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar að endurskoða skipulag reitsins í ljósi hugmynda um að Listaháskóli Íslands myndi koma sér betur fyrir á reitnum. Í dag er starfsemi skólans á reitnum meðal annars í nokkurs konar sumarhúsum sem komið var fyrir með bráðabirgðaleyfum. Þá vekur borgarstjóri athygli forsætisráðherra á því að samkvæmt gildandi deiliskipulagi megi rífa fjögur steinhús á reitnum en eitt þeirra, svokallað Landssímahús sem Guðjón Samúelsson teiknaði, hefur þegar verið rifið. Í bréfinu til húsameistara segir að Reykjavíkurborg vilji eindregið að þau þrjú hús sem standa eftir á reitnum fái að standa jafnvel þótt það kalli á róttæka endurskoðun á hugmyndum um uppbyggingu í þágu stjórnarráðsins á reitnum,“ segir í fréttinni. Nánar er fjallað um málið á vef Reykjavíkurborgar.
Mest lesið Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Fleiri fréttir Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Sjá meira