Bjóða borpalla fyrir flóttafólk Kristján Már Unnarsson skrifar 29. nóvember 2015 09:30 Íbúðapallurinn Floatel Superior er með 440 einsmannsherbergi um borð. Mynd/Westcon.
Eigendur flotpalla, sem notaðir eru í norska olíuiðnaðinum, hafa boðið þarlendum stjórnvöldum að þeir verði nýttir sem gistirými fyrir flóttamenn. Fulltrúi Stavanger-borgar staðfestir í samtali við Stavanger Aftenblad að borpallafyrirtæki hafi látið vita að þau hafi laus gistirými sem megi nýta í þessu skyni. Norsk sveitarfélög búa sig undir að taka á móti allt að 80 þúsund flóttamönnum og hælisleitendum. Til að geta tekið við öllum þessum fjölda velta sveitarfélögin og Útlendingastofnun Noregs nú við hverjum steini til að finna húsrými. Útlendingastofnunin hefur meðal annars óskað tilboða um gistingu um borð í farþegaskipum sem gætu nýst sem fljótandi gistihús fyrir flóttamenn. Borpallafyrirtækin sjá þó ekki fyrir sér að flóttamennirnir verði fluttir út á olíuvinnslusvæði í þyrlum. Þau bjóða gistingu um borð í íbúðapöllum sem bíða verkefnalausir inni á fjörðum eða í og við hafnir Noregs. Talsmaður Útlendingastofnunar segir olíuborpalla eða íbúðapalla ekki til skoðunar, - að svo komnu máli. Það kalli á of flókna og dýra skipulagningu. Að auki séu pallarnir það langt frá þjónustu sveitarfélaganna og neyðarþjónustu að í reynd myndi gisting þar jafngilda frelsisskerðingu. Flóttamennirnir þurfi að geta um frjálst höfuð strokið og farið inn og út og eins og þeir óska. Móttökumiðstöðvar flóttamanna eigi ekki að vera stofnanir heldur valfrjálst húsnæði. Menn geta þó vart kvartað undan aðstöðu um borð. Gistipallurinn Floatel Superior hefur verið nefndur sem dæmi. Þar eru 440 einsmannsherbergi. Hluta þeirra má nýta sem tveggjamannaherbergi en þannig gæti hann hýst allt að 512 manns. Þá eru matsalur og tómstundaaðstaða með líkamsræktarsal um borð.
Mest lesið Guðmundur Felix kominn með krabbamein Innlent Blöskrar hegðun ferðamanna við Sólheimajökul Innlent „Ég er skrímsli“ Innlent Horfði á fallega húsið sitt fuðra upp Innlent Skipulagður brotahópur kúgaði íslenskan pilt með gervigreindarmyndbandi Innlent Landhelgisgæslan sótti mann í Vestmannaeyjum Innlent Skilaboð send úr símanum í blekkingarskyni Erlent Hálf áhöfnin bönnuð frá Evrópu í tvö ár Innlent Vara við snörpum vindhviðum Veður Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Innlent Fleiri fréttir Harðar deilur innan klerkastjórnarinnar Níu felldir í Kænugarði Kallað eftir skyndifundi innanríkisráðherra ESB Myndir: Tugir þúsunda syntu til Ceuta Skilaboð send úr símanum í blekkingarskyni Hamasliðar samþykkja að afvopnast Tæplega 50 þúsund manns synt til Ceuta á einum sólahring Trump segir Hamas samþykkja að afvopnast og Ísrael að hverfa frá Gasa „Hún drap börnin“ „Það sem hann gerði, ég get aldrei endurgoldið það“ Nítján ára Norðmaður dæmdur fyrir að taka að sér leigumorð á Englandi Bandaríkjamaður sagður smygla vopnum og málaliðum til Súdan Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Segjast hafa gert harða hríð að byltingarverðinum Minnst þrjátíu látnir í Japan Fjögur börn látin eftir loftárásir Rússa á borgir Úkraínu Neitaði að svara spurningum þingmanna Leita enn í rústunum í Japan „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Stofnandi Telegram ákærður og eftirlýstur í Rússlandi Tuttugu drengir á Gothia Cup týndir Ebólan komin í metstærð á mettíma Nýr forseti hét því að beita hernum gegn glæpum Þrettán látnir hið minnsta í Japan Írönum hótað hefndum eftir árás á herstöð Bandaríkjanna Ræddu Patriot-flaugar og friðarviðræður Vill að RFK gangi harðar fram gegn bólusetningum Fólk fast í verslunarmiðstöð eftir skjálftann í Japan „Við munum ná markmiðum okkar“ Vilja að Hæstiréttur taki afstöðu Sjá meira