Móðirin hafði samband og baðst afsökunar sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 11. nóvember 2015 11:56 Verslunin iStore hvatti þjófinn unga til að bæta fyrir brot sín. vísir/ernir „
Við sáum að þetta var ungur drengur og vildum gefa honum tækifæri til að bæta fyrir brot sín og koma sér inn á beinu brautina, án þess þó að þurfa að leita til lögreglu,“ segir Sigurður Þór Helgason, eigandi verslunarinnar iStore.Fingralangur bætti fyrir brot sín Verslunin birti í gær mynd á Facebook af ungum pilt sem hafði heimsótt verslunina á dögunum, en haft á brott með sér raftæki fyrir um tuttugu þúsund krónur. Myndin vakti nokkra athygli og ekki leið á löngu þar til móðir drengsins hafði samband við Sigurð Þór. „Móðir hans hafði samband við mig í gærkvöldi og við áttum gott samtal. Hún var virkilega þakklát hvernig við tókum á þessu, bað mig innilegrar afsökunar og skilaði því sem sonur hennar tók,“ segir Sigurður, sem ekki vill gefa upp hvað það var sem drengurinn tók ófrjálsri hendi. Um hafi verið að ræða mikilvægan hlut sem verslunin hafi ekki mátt verða af. Því hafi verið mikilvægt að hafa hraðar hendur.Facebook árangursríkari en lögreglan „Fyrst og fremst ákváðum við að fara þessa leið sökum þess hve ungur drengurinn er. En einnig töldum við þessa leið árangursríkari en að leita til lögreglu, þar sem rannsókn tekur oft langan tíma,“ útskýrir hann. „Við pössuðum okkur að afmá andlit hans alveg þannig að einungis hann sjálfur myndi þekkja sig á myndunum, þ.e af fötunum,“ bætir hann við en færslunni hefur nú verið eytt af síðu verslunarinnar. Þá segir Sigurður það ekki algengt að stolið sé úr versluninni. Afar öflugt myndavéla- og þjófavarnarkerfi sé til staðar. Nú rétt í þessu var móðir piltsins sem sjá mátti með hulið andlit á mynd frá okkur fyrr í kvöld að skila því sem...Posted by iStore Íslandi on 10. nóvember 2015
Mest lesið Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Innlent „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Innlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent Þyrlan lenti við Hörpu Innlent „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Innlent Tortímir gervigreindin mannkyninu? Innlent Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Innlent Buxnalaus Lalli olli glundroða Innlent Fleiri fréttir Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Tortímir gervigreindin mannkyninu? „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Sjá meira