Fyrsta skóflustungan að sjúkrahóteli sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 11. nóvember 2015 12:55 Kristján Þór tók fyrstu skóflustunguna. Með honum voru fyrrverandi heilbrigðisráðherrar og fleiri. vísir/gva
Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra skrifaði í dag undir samning um byggingu sjúkrahótels. Samningurinn er á milli Nýs Landspítala ohf. og LNS Saga ehf sem var lægstbjóðandi í verkið í útboði sem fram fór í september. Fyrstu skóflustunguna tók Kristján Þór, en með honum voru meðal annars fyrrverandi heilbrigðisráðherrar auk starfsmanna Landspítala, annarra velunnara hans og áhugafólks um uppbyggingu þjóðarsjúkrahússins við Hringbraut.Ragnhildur Helgadóttir, fyrrverandi ráðherra, var á meðal þeirra sem vottuðu samninginn.vísir/gva„Þetta er ánægjulegur dagur sem markar ákveðin tímamót. Nýtt sjúkrahótel mun bæta þjónustu við sjúklinga og aðstandendur þeirra strax og það er risið. Mestu skiptir þó sú staðreynd að með þessum fyrsta áfanga eru verklegar framkvæmdir við uppbyggingu þjóðarsjúkrahúss hafnar," segir Kristján Þór í tilkynningu. Framkvæmdirnar munu hefjast fljótlega. Í fyrstu er um að ræða gerð bráðabirgðabílastæða á svæðinu sunnan við aðalbyggingu Landspítala sem koma í stað annarra stæða sem verður lokað tímabundið þegar framkvæmdir hefjast við byggingu sjúkrahótelsins. Verklok eru áætluð um miðjan desember.Ingibjörg Pálmadóttir og Svavar Gestsson.vísir/gvaSjúkrahótelið er hluti af fyrsta áfanga uppbyggingar Nýs Landspítala við Hringbraut. Það mun rísa á norðurhluta lóðar spítalans milli kvennadeildar, K-byggingar og Barónsstígs og verður tekið í notkun árið 2017. Sjötíu og fimm herbergi verða í sjúkrahótelinu. „Dagurinn í dag markar upphaf uppbyggingar nýs Landspítala. Mikilvægum áföngum er náð; bæði með byggingu sjúkrahótelsins og með vinnu við fullnaðarhönnun meðferðarkjarnans sem verður hjartað í starfsemi nýs spítala. Við sjáum því árangur þrotlausrar vinnu síðustu ára og getum farið að horfa til framtíðar. Nýtt og betra þjóðarsjúkrahús er hagsmuna- öryggismál okkar allra,“ segir Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans, í tilkynningunni.Siv Friðleifsdóttir og Svavar Gestsson. Á myndinni má einnig sjá Ingibjörgu Pálmadóttur, Guðmund Árna Stefánsson og Guðlaug Þór Þórðarson.vísir/gvaDagur B. Eggertsson og Páll Matthíasson. Á myndinni má einnig sjá Birgi Jakobsson landlækni, Leif Bárðarson hjá landlæknisembættinu og ráðherrana fyrrverandi Jón Kristjánsson, Ingibjörgu Pálmadóttur og Svavar Gestsson.vísir/gvaSamninginn undirrituðu Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra og Ásgeir Loftsson frá LNS Saga.vísir/gvaSjúkrahótelið verður fjórar hæðir og kjallari. Byggingin er 4.258 fermetrar að stærð (brúttó). Samningsfjárhæð er um 1,9 milljarðar króna.
Mest lesið Draumur Demókrata að rætast Erlent Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Fleiri fréttir Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku Sjá meira