Tæpur helmingur ekki með ADHD Kristjana Björg Guðbrandsdóttir skrifar 13. nóvember 2015 07:00 Á geðsviði Landspítala leitar fólk aðstoðar ADHD teymisins vegna einbeitingarörðugleika, tæpur helmingur fær ekki greiningu. vísir/vilhelm
Páll Magnússon sálfræðingur „Einbeitingarörðugleikar geta orsakast af öðru en ADHD,“ segir Páll Magnússon sálfræðingur sem er teymisstjóri ADHD-teymisins á geðsviði Landspítalans. Tæpur helmingur þeirra fullorðinna sem leita eftir greiningu greinist ekki með ADHD og fær ráðgjöf um að leita annað til að öðlast betri einbeitingu. „Í heildina er liðlega helmingurinn af tilvísunum með ADHD, en um 45 prósent reynast ekki vera með ADHD, segir Páll. „Þessi hópur er greinilega í vanda en við gerum í sjálfu sér ekki neitt nema í þeim tilvikum sem við sjáum að er þörf á sérstökum úrræðum, þá látum við fylgja ráðgjöf um það.“ Hann segir þann hóp fullorðinna sem fær ekki greiningu stundum hafa einkenni ADHD en vera undir greiningarmörkum. „Hins vegar er það þannig að einbeitingarörðugleikar geta orsakast af mörgu öðru en ADHD, þá sérstaklega kvíða og þunglyndi. Stundum er það niðurstaðan.“ Alls bíða 600 einstaklingar greiningar hjá ADHD-teymi Landspítalans. Þrjú til fimm prósent fullorðinna eru talin vera með ADHD en allt að 70 prósent barna sem greinst hafa með ADHD hafa áfram verulega hömlun af ADHD-einkennum á fullorðinsaldri. Fylgifiskar ADHD geta verið kvíði og þunglyndi, fíkn, námserfiðleikar og svefntruflanir. Fullorðnir með ADHD eru með hærri tíðni andfélagslegrar hegðunar svo sem þjófnaða, líkamsárása og vímuefnamisferlis.
Mest lesið Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Baldur til Eyja Innlent Seltjarnarnes heldur áfram að tapa Innlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur Viðskipti innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent „Hún er skrifuð af mér“ Innlent „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Innlent Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Innlent „Það er mikið verið að suða“ Innlent Fleiri fréttir Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Sjá meira