Curry með 53 stig í sigri Golden State | Myndbönd Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 1. nóvember 2015 11:13 Curry var óstöðvandi í nótt. vísir/getty
Stephen Curry héldu engin bönd þegar Golden State Warriors vann 14 stiga sigur, 134-120, á New Orleans Pelicans í NBA-deildinni í nótt. Curry skoraði 53 stig í leiknum, þar af komu 28 þeirra í 3. leikhluta. Hann hefur aldrei gert jafnmörg stig í einum leikhluta á ferlinum. Curry hitti úr 17 af 27 skotum sínum utan af velli en átta af 14 þriggja stiga skotum hans rötuðu rétta leið. Curry ekki sá eini sem var heitur fyrir utan þriggja stiga línuna en meistararnir voru með 56,7% skotnýtingu í þristum í leiknum. Anthony Davis var atkvæðamestur hjá New Orleans með 26 stig og 15 fráköst en liðið hefur tapað öllum þremur leikjum sínum í vetur. Los Angeles Clippers hefur unnið alla þrjá leiki sína en í nótt bar liðið sigurorð af Sacramento Kings, 114-109. Þetta var 18. sigur Clippers á Sacramento í síðustu 21 leik liðanna. Blake Griffin átti flottan leik í liði Clippers; skoraði 37 stig, tók níu fráköst og gaf sex stoðsendingar. J.J. Redick kom næstur með 23 stig og þá áttu þeir Chris Paul og DeAndre Jordan fínan leik. Paul var með 17 stig og 11 stoðsendingar og Jordan skoraði 15 stig og reif niður 18 fráköst. Rajon Rondo var atkvæðamestur í liði Sacramento með 21 stig, fimm fráköst og átta stoðsendingar. Carmelo Anthony fór fyrir liði New York Knicks sem vann sjö stiga sigur, 117-110, á Washington Wizards í höfuðborginni. Anthony skoraði 37 stig en hann hitti úr 11 af 18 skotum sínum utan af velli í nótt. Hjá Washington voru bakverðirnir John Wall og Bradley Beal í aðalhlutverkum. Wall skoraði 26 stig og Beal 25.Úrslitin í nótt: New Orleans 120-134 Golden State LA Clippers 114-109 Sacramento Washington 110-117 NY Knicks Indiana 76-97 Utah Memphis 101-91 Brooklyn Portland 90-101 PhoenixCurry átti magnaðan leik Griffin fór fyrir Clippers-liðinu Flottustu tilþrif næturinnar
NBA Mest lesið „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Kolbeinn enn taplaus eftir blóðugan bardaga í Köben Sport Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Körfubolti PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Mikil spenna fyrir lokahringinn Golf Fleiri fréttir Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Sjá meira