Gæti ráðið 100 hjúkrunarfræðinga í dag Svavar Hávarðsson skrifar 2. nóvember 2015 07:00 Á Landspítala starfa 1.445 hjúkrunarfræðingar í alls 1.067 stöðugildum. vísir/vilhelm „
Við gætum ráðið um 100 hjúkrunarfræðinga í stöður hjá okkur strax í dag. Á næstu þremur til fjórum árum er áætlað að 900 hjúkrunarfræðingar öðlist rétt til töku lífeyris á Íslandi en á sama tíma erum við að útskrifa rúmlega 400 hjúkrunarfræðinga. Þetta svar heilbrigðisráðherra er því ekki í takt við mat okkar hér á spítalanum,“ segir Sigríður Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar á Landspítalanum. Efnismikið svar barst Steingrími J. Sigfússyni, þingmanni Vinstri grænna, frá Kristjáni Þór Júlíussyni heilbrigðisráðherra í síðustu viku við fyrirspurn um horfur í mönnun heilbrigðisþjónustunnar. Þar er vísað til ýmissa gagna, þ. á m. mannaflaspár fram til ársins 2030 sem var unnin í velferðarráðuneytinu árin 2011-2012. Í svarinu segir: „Ef spáin er borin saman við þróun síðustu ára fjölgaði hjúkrunarfræðingum hraðar en hámarksspá um eftirspurn gerði ráð fyrir á árunum 2010-2013 og árið 2014 var fjöldi þeirra orðinn 250 meiri en spáð var.“ Fjallað er um áhrif hækkandi aldurs og þau áhrif sem það gæti haft á mönnun – mun það samkvæmt spánni 2011–2012 koma fram í nánustu framtíð. Hins vegar verður svarið vart skilið öðruvísi en staðan sé viðunandi, en tekið fram að ýmsar sérgreinar séu helsta áhyggjuefnið.Kristján Þór JúlíussonSigríður segist ekki hafa undir höndum þau gögn sem velferðarráðuneytið byggir á í svarinu til Steingríms, en segir að innan spítalans séu „verulegar áhyggjur af skorti á heilbrigðisstarfsfólki“ á næstu misserum. Það eigi ekki síst við um hjúkrunarfræðinga almennt og sé í takti við það sem er að gerast um heim allan vegna aukinnar þjónustuþarfar með fjölgun aldraðra og langveikra, en víða um heim hefur þessari þróun verið svarað með því að fela hjúkrunarfræðingum fleiri verkefni í stað þess að fjölga læknum. Sigríður segir að áhyggjur stjórnanda á LSH lúti einnig að vissum sérgreinum innan spítalans; lífeindafræðingar þar sem meðalaldur er hár. Sama á við um svæfingar- og skurðstofuhjúkrunarfræðinga. Þar sé um sérhæft starfsfólk að ræða sem tekur langan tíma að þjálfa og ekki hrist fram úr erminni að manna stöður þeirra sem láta af störfum. „Ég veit ekki hvernig ber að leggja út frá svari heilbrigðisráðherra en mín tilfinning hefur verið sú að fyrirsjáanlegur sé verulegur skortur á hjúkrunarfræðingum.Sigríður Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar á LSHÍ svari ráðherra segir: „Á Landspítala hefur þó gengið nokkuð vel að manna vaktir utan dagvinnutíma þrátt fyrir hækkandi aldur margra heilbrigðisstétta.“ Sigríði kemur þetta svar ráðherrans á óvart enda sé það þvert á reynslu þeirra sem starfa á spítalanum. „Við höfum verið að auglýsa eftir hjúkrunarfræðingum og það hefur gengið verst að manna vaktavinnuna; vinnu utan dagvinnutíma. Það er misræmi í þessum hluta svars ráðherra miðað við reynslu okkar hérna á Landspítalanum og þess sem við höfum verið að reyna að sjá fyrir.“ Fram kemur í svari ráðherra að vissulega hefur útskrifuðum hjúkrunarfræðingum fjölgað nokkuð síðustu þrjú ár miðað við árin á undan. Má rifja það upp að eftir hrun stórjókst aðsókn í hjúkrunarfræðinám – sem aftur kom fram fjórum til fimm árum síðar. Núna í vor var svo í fyrsta sinn tekið upp inngöngupróf í hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands, eins og reyndar einnig í lög- og hagfræði. „Þetta skilaði því að um 100 manns var boðið pláss sem endurspeglar getu okkar til að mennta hjúkrunarfræðinga út frá fjárveitingum og fleiru. Mér skilst hins vegar að 150 uppfylltu skilyrðin til þess að stunda námið. Það er því eftirsókn til að komast í hjúkrunarfræðinám langt umfram framboð. Umsækjendur við Háskólann á Akureyri voru líka mun fleiri en þeir sem komust inn. Námið er því eftirsótt en við höfum ekki getu til að svara þeirri eftirspurn. Flöskuhálsinn er ekki síst klíníska námið, því það er eitt að kenna í fyrirlestrasal og verklegi hlutinn er annað. Ég myndi gjarnan vilja taka við fleirum því við sjáum svo mikil sóknarfæri í því hvaða verkefnum hjúkrunarfræðingar gætu verið að sinna,“ segir Sigríður.
Mest lesið Gengst við eftirlíkingunum: „Ég þekki ekki þessi lög og seldi þessar myndir ekki“ Innlent Lýsa miklum troðningi, átökum og gráti á FM95BLÖ Innlent „Glatað að heyra af því að fólk hafi meitt sig“ Innlent Stutt pása hleypti öllu í bál og brand Innlent Sprengjuflugvélar loga víða í Rússlandi Erlent Þrír fluttir á bráðamóttökuna af tónleikum FM95BLÖ Innlent „Beið eftir því að eitthvað stórslys myndi gerast“ Innlent „Okkur þykir það mjög miður að þessar aðstæður hafi skapast“ Innlent Kosti tugi milljóna að hirða yfirgefin húsgögn Innlent Tveir löðrungar og fall líklega ekki orsök andlátsins Innlent Fleiri fréttir „Beið eftir því að eitthvað stórslys myndi gerast“ Sirkus hundur skemmtir ferðamönnum á Höfn í sumar Sögulegur „köngulóavefur“, troðningur á tónleikum og stemning á degi sjómanna „Glatað að heyra af því að fólk hafi meitt sig“ Stærsta brautskráning í sögu skólans Einn lagður inn á sjúkrahús eftir tónleikana Gengst við eftirlíkingunum: „Ég þekki ekki þessi lög og seldi þessar myndir ekki“ „Okkur þykir það mjög miður að þessar aðstæður hafi skapast“ „Hann vildi ekki klaga, klaga hvern þá?“ Stefnir í metkjörsókn í pólsku forsetakosningunum Viðvaranir vegna snjókomu og hríðar: „Þetta eru mikil vonbrigði“ Útlendingaandúð sé vinsæl leið til að marka sér stöðu á samfélagsmiðlum Nýr verslunarkjarni opnaður á Selfossi Stutt pása hleypti öllu í bál og brand Fór ekki út úr húsi eftir afsögnina Troðningur í Laugardalshöll, óveður og sjómannadeginum fagnað Landsmálin, fiskveiðistjórnun og Ásthildur Lóa í Sprengisandi Lýsa miklum troðningi, átökum og gráti á FM95BLÖ Brot á vopnalögum og líkamsárás á tónleikum Tveir löðrungar og fall líklega ekki orsök andlátsins Þrír fluttir á bráðamóttökuna af tónleikum FM95BLÖ Tékknesk herþota hluti af árlegri flugsýningu Kosti tugi milljóna að hirða yfirgefin húsgögn „Fallegur dagur“ fyrir útskrift Banaslysið haft áhrif á undirbúning manngerðra íshella Sagðist ekki hafa orðið var við átök: „Ég var eins og pabbi þeirra“ Gamlir Fóstbræður sungu fyrir Njál og hans fólk á Bergþórshvoli Einn fékk rúmar fimmtíu milljónir Lengri opnunartímar sundlauga taka gildi „Við erum engir rasistar“ Sjá meira