Innlent

Sendi SMS og keyrði á umferðarljós

GETTY
Ökumaður sem var að senda smáskilaboð missti stjórn á bíl sínum á Sæbraut við Holtaveg á tólfta tímanum í gær með þeim afleiðingum að hann ók á grindverk og umferðarljós.

Einn farþegi var í bílnum en engan sakaði. Að sögn lögreglu skemmdist bíllinn í árekstrinum og einnig umferðarljósin og grindverkið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×