Innlent

Jörð skalf við Húsavík

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Upptök skjálftans voru um 4 kílómetra norður af Húsavík.
Upptök skjálftans voru um 4 kílómetra norður af Húsavík. Vísir/Vilhelm
Laust fyrir miðnætti í nótt mældist jarðskjálfti að stærð 2,9 skammt frá Húsavík. Upptökin voru við Héðinshöfða sem er um 4 kílómetra norðan við bæinn.

Samkvæmt upplýsingum á vef Veðurstofunnar fannst skjálftinn vel á Húsavík og bárust tilkynningar um skjálftann til stofnunarinnar. Þá kemur jafnframt fram að ekki hafi mælst eftirskjálftar á svæðinu í nótt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×