Innlent

Fáir fá A á landsbyggðinni

Kristjana Guðbrandsdóttir skrifar
Mikill munur er á árangri nemenda á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni í samræmdum prófum.
Mikill munur er á árangri nemenda á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni í samræmdum prófum. Vísir/Anton
Menntamálastofnun hefur birt niðurstöður úr samræmdum könnunarprófum í íslensku, stærðfræði og ensku fyrir 10. bekk sem haldin voru í september.

Munur á milli meðaltala normal­dreifðra einkunna í íslensku og stærðfræði eykst milli ára á milli höfuðborgarsvæðis og landsbyggðar. Munurinn milli höfuðborgarsvæðis og landsbyggðar kemur enn skýrar fram í hlutfalli einstakra einkunna. Þannig er hlutfall þeirra nemenda sem fengu A á höfuðborgarsvæðinu verulega hærra en á landsbyggðinni. Þetta á við í öllum fögum. Í Reykjavík fengu til að mynda 9,7 prósent hæfniseinkunnina A í íslensku en aðeins 3,5 prósent í Suðurkjördæmi.

Menntamálastofnun telur mikilvægt að bregðast við muninum á námsárangri milli höfuðborgarsvæðis og landsbyggðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×