deNos og Palli bóndi berast á banaspjótum Jakob Bjarnar skrifar 5. nóvember 2015 13:12 Ólafur Nils. Úrslitaleikurinn verður athyglisverður en þar munu gamlar kempur takast á við yngri spilara. „
Þetta er úrslitaleikurinn í haustdeild Tuddans, sem er Íslandsmeistaramótið í tölvuleikjum. Bæði lið hafa lagt mikla vinnu síðastliðna þrjá mánuði við að koma sér á þennan stað, og þetta er uppskera þess erfiðis, hvort liðið endar á að vera Íslandsmeistari á laugardaginn,“ segir Ólafur Nils Sigurðsson, sérlegur sérfræðingur Vísis í Counter-Strike Global Offensive eða bara CS. Nú stendur mikið til, og veruleg eftirvænting er ríkjandi innan CS-samfélagsins. Úrslitaleikur Íslandsmótsins í Counter-Strike. „Já ég hugsa að nánast allir muni fylgjast með því hver verður meistari á laugardaginn,“ segir Ólafur Nils: „Leikirnir munu fara fram í Tölvulistanum á næstkomandi laugardag, League of Legends keppnin hefst á hádegi, og Counter-Strike hefst 15.00, við hvetjum fólk til þess að koma á staðinn og hvetja sína menn.“Þeir gömlu gegn þeim hinum yngriVísir mun streyma leiknum – hægt verður að fylgjast með leiknum í beinni útsendingu á Vísi. En, hvaða lið eru þetta sem eru að fara að eigast við og hvað má um þau segja? „Annað liðið, SeveN, er skipað leikmönnum sem að flestir kepptu í leiknum fyrir mörgum árum en fóru svo í pásu, en með auknum vinsældum leiksins nýverið þá snéru þeir aftur. Þeir hafa komið flestum á óvart með örum bætingum og hafa stimplað sig inn sem topplið á landinu á síðastliðnum mánuði. Liðið er skipað leikmönnum sem hafa gríðarlega reynslu og hafa meira að segja keppt erlendis við góðan orðstýr,“ útskýrir Ólafur Nils.Og það er ekki laust við að blaðamaðurinn, sem er gamall í hettunni, sé þá þegar búinn að ákveða með hverjum hann ætlar að halda. Eða hvað? „Mótherjar þeirra eru Malefiq.Tölvutek, sem er skipað yngri leikmönnum, hluti af þeim hefur þó töluverða reynslu, og tveir af lykilmönnum íslenska landsliðsins eru í því, þar af besti leikmaður landsins, Páll Sindri Einarsson. Þannig að það mætti segja að í leiknum mætist tvær kynslóðir leikmanna og það verður gríðarlega áhugavert að sjá hver ber sigur úr býtum.“ Þetta er því athyglisvert. Þessir gömlu eru ekki eins reyndir og þeir sem yngri eru.Heilinn gegn hinum snaraVísir fylgdist grannt með gangi mála fyrir um mánuði þegar Ísland var næstum því komið í úrslit HM í Counter-Strike. Aðeins einn leikmaður SeveN var í landsliðshópnum, enda hefur liðið tekið gríðarlegum framförum á stuttum tíma, að sögn Ólafs. Fjórir af fimm leikmönnum Malefiq voru hinsvegar í landsliðshópnum, og tveir voru í liðinu sem að lék alla leiki í undankeppni heimsmeistaramótsins.En, með hvaða leikmönnum ættu áhorfendur einkum að hafa á góðar gætur? „Ég myndi fylgjast vel með Brynjari Páli 'deNos' Jóhannssyni hjá SeveN, en hann er bæði heili liðsins og einn öflugasti leikmaður þeirra. Í liði Malefiq er það landsliðsmaðurinn Páll Sindri 'pallib0ndi' Einarsson sem er ein helsta vonarstjarna Íslands og sennilegasta besti leikmaðurinn á landinu.“ Ólafur Nils hvetur alla sem vettlingi geta valdið að mæta í Tölvulistann, þar sem viðureignin fer fram og hann lofar góðri stemmningu.
Tengdar fréttir CS samfélagið grátt fyrir járnum Þrír landsleikir í Counter-Strike verða nú á eftir. Vísir sendir beint út frá leikjunum. 29. september 2015 14:57 Fylgist með landsleiknum í CS í beinni á Vísi Íslenska landsliðið í Counter Strike etur kappi við hina ógnarsterku Svía. 28. september 2015 20:29 „Það verða allir stjarfir að fylgjast með“ Íslenska landsliðið í Counter-Strike keppir við hina ógnarsterku Svía í kvöld; á leið sinni í úrslit heimsmeistaramótsins. 28. september 2015 11:29 Mest lesið Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Erlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Segir af sér vegna lestarslysa Erlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent Fleiri fréttir Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Sjá meira
CS samfélagið grátt fyrir járnum Þrír landsleikir í Counter-Strike verða nú á eftir. Vísir sendir beint út frá leikjunum. 29. september 2015 14:57
Fylgist með landsleiknum í CS í beinni á Vísi Íslenska landsliðið í Counter Strike etur kappi við hina ógnarsterku Svía. 28. september 2015 20:29
„Það verða allir stjarfir að fylgjast með“ Íslenska landsliðið í Counter-Strike keppir við hina ógnarsterku Svía í kvöld; á leið sinni í úrslit heimsmeistaramótsins. 28. september 2015 11:29