Innlent

Þreifuðu fyrir sér hjá slökkviliðinu

Una Sighvatsdóttir skrifar
Það var mikill spenningur í loftinu á slökkvistöð Hafnarfjarðar í dag. Slökkviliðið höfuðborgarsvæðinu fer á hverju ári með eldvarnarfræðslu inn í grunnskóla, en í dag var í fyrsta sinn boðið upp á sérstakan fræðsludag fyrir blind og sjónskert börn.



„Þetta er hópur sem hefur ekki fengið þessa fræðslu og kannski orðið svolítið eftir. Þess vegna ákváðum við að bjóða þeim að koma hér í dag til þess að fá þessa eldvarnafræðslu og fá aðeins að prófa og þreifa á hlutunum líka, gera aðeins meira en aðrir fá," segir Hörður Halldórsson slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður.



Hörður á veg og vanda að skipulagningu dagsins í samvinnu við starfsmenn Þjónust- og þekkingarmiðstöðvar fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga. Börnin sem heimsóttu slökkviliðið í dag eiga það öll sameiginlegt að vera með innan við 30% sjón og eru því ýmist verulega sjónskert eða alblind.



Búa til litla slökkviliðskarla- og konur

Fréttastofa ræddi við Bjarka Ísaksson, sem er átta ára gamall með sjónskerðingu. Hann var nokkuð uppnuminn enda lærði hann heilmikið á slökkvistöðinni í dag. „Ég er búinn að læra að renna mér niður súlu pínu og ég er búinn að læra að það er tölva þarna inni [í slökkvibílnum] og ég er búinn að læra að þekkja að þetta er sjúkrabíll," sagði Bjarki og benti fréttamanni á búnaðinn sem hann vísaði til.



Eftir fræðsluna fengu krakkarnir að skoða sig um á slökkvistöðinni, máta búning slökkviliðsmanna, þreifa á og sprauta úr brunaslöngunni og láta lyfta sér upp í körfubílnum. Í lok heimsóknarinnar fengu svo öll börnin reykskynjara og vasaljós í gjöf frá slökkviliðinu.



Að sögn Harðar sýnir reynslan að eldvarnafræðsla til barna skilar sér þegar á reynir. „Svona fræðsla gerir það nefnilega. Börnin eru mjög meðtækileg þegar við tölum við þau. Svo fara þau heim og virkja foreldrana með sér. Þannig að við búum til litla slökkviliðskarla- og konur úr þeim og svo fara þau heim og klára málið þar og fræða foreldrana."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×