Mikið um ölvun á Airwaves sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 8. nóvember 2015 09:28 Fjölmennt var í miðbænum í gær. vísir/ktd
Talsverður erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt vegna ölvunar. Margmenni var í miðbænum, meðal annars í tilefni Airwaves-hátíðarinnar sem náði hámarki í gærkvöld. Óskað var eftir aðstoð lögreglu á fimmta tímanum í nótt vegna líkamsárásar á bar í miðbænum. Karlmaður á fimmtugsaldri hafi orðið fyrir árás nokkurra aðila þannig að nokkrar tennur brotnuðu í efri góm hans, að því er segir í dagbók lögreglu. Maður á þrítugsaldri var handtekinn vegna málsins og vistaður í fangageymslu. Um fjögur leytið var lögregla og sjúkralið kölluð út vegna kvenmanns á þrítugsaldri sem taldi að sér hefði verið byrlað ólyfjan, þar sem hún ætti erfitt með andardrátt og kastaði stöðugt upp. Í dagbókinni segir að konan hafi verið að reykja kannabis og það farið illa í hana. Á þriðja tímanum hafði lögregla afskipti af sautján ára pilti í Austurbæ þar sem hann var búinn að koma sér fyrir inni í bifreið sem hann átti ekki. Hann var undir áhrifum áfengis og sagðist ekki í nein hús að venda. Pilturinn gisti í fangaklefa en þar sem ekki náðist í forráðamenn hans var Barnavernd tilkynnt um málið. Um kvöldmatarleyti var óskað eftir aðstoð lögreglu vegna óláta tveggja pilta í og við Kringluna. Þeir höfðu meðal annars átt að hafa ógnað lögreglu með kúbeini. Einn sextán ára piltur var handtekinn en hann var með hamar falinn innan klæða auk þess sem hann var undir áhrifum áfengis og vímuefna. Forráðamaður drengsins var fenginn til að sækja hann að skýrslutöku lokinni. Þá var tilkynnt um þjófnað í Smáralind um klukkan fimm í gær.Öryggisverðir hugðust stöðva þjófinn, karlmann á þrítugsaldri, en sá ógnaði þeim með hníf. Lögregla handtók hann skammt frá verslunarmiðstöðinni. Í dagbók lögreglu segir að hann hafi verið undir áhrifum fíkniefna auk þess sem fíkniefni fundust í fórum hans.
Mest lesið Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Erlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Segir af sér vegna lestarslysa Erlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent Fleiri fréttir Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Sjá meira